Vantar starfsmann við heimaþjónustu

DalabyggðFréttir

Starfsmann vantar hjá félagsþjónustu Dalabyggðar við heimaþjónustu á einu heimili.

Í félagslegri heimaþjónustu er veitt aðstoð við þrif, heimilisstörf og/eða félagslegur stuðningur til að gera viðkomandi kleift að búa á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður.

Umsækjandi þarf að vera stundvís, áreiðanlegur, heiðarlegur og hafa góða samskiptahæfileika. Öll eldri en 17 ára (með bílpróf) hvött til að sækja um.

Frekari upplýsingar gefur Sigríður í síma 839 1400 á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10–12.

Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið heima.tjonusta@dalir.is.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei