Ólafsdalshátíð

DalabyggðFréttir

Árleg Ólafsdalshátíð verður haldin sunnudaginn 12. ágúst kl. 13.00 – 17:30. Aðgangur er ókeypis.

Gestum er bent á að netsamband er stopult í Ólafsdal og því skynsamlegt að hafa með sér lausafé til að versla eða taka þátt í happdrætti.

Dagskrá

10:30
Undanfari hátíðar. Gönguferð í Skálina.
Gengið upp í skálina í Ólafsdal og spáð í örnefni, byggingar og staðhætti í Ólafsdal. Ljósmyndir sem teknar voru úr Skálinni um 1900 hafðar til hliðsjónar.
12:00 Ólafsdalshappdrætti
Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst. Miðaverð er kr. 500. Fjöldi veglegra vinninga.
12:00 Ólafsdalsmarkaður og sýningar
Ólafsdalsgrænmeti, fjölbreytt handverk, ostar frá MS, Erpsstaðaís, kræklingur, ber, hestar teymdir undir börnum, stuttur reiðtúr og margt fleira. Kaffiveitingar.
Sýningin Ólafsdalsskólinn 1880-1907 á fyrstu hæð skólahússins.
Dalir og Hólar FERÐ: Listsýning á annarri hæð skólahússins.
13:00
Hátíðardagskrá
Kynnir er Jóhannes Haukur Jóhannesson, leikari.
Ávörp flytja Svavar Gestsson stjórnarmaður í Ólafsdalsfélaginu, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri Auðarskóla.
Hljómsveitin Moses Hightower.
Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með gamanmál.
Þorgeir Ástvaldsson útvarpsmaður flytur erindið Ólafsdalur 1906-1916, minningar frænda míns.
15:00 Stígvélaði kötturinn
Leikhópurinn Lotta sýnir Stígvélaða köttinn
16:30 Dregið í Ólafsdalshappdrættinu
17:00
Eyðibýli á Íslandi
Steinunn Eik Egilsdóttir arkitektanemi og Gísli Sverrir Árnason R3 ráðgjöf kynna rannsóknarverkefnið Eyðibýli á Íslandi. Áhugaverð hús á Vesturlandi.
13:00
Kaffihlaðborð að Skriðulandi.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei