Opið fyrir umsóknir í menningarmálaverkefnasjóð

DalabyggðFréttir

Menningarmálanefnd Dalabyggðar auglýsir eftir umsóknum í menningarmálaverkefnasjóð.

Hlutverk sjóðsins er að styðja við menningarmál í Dalabyggð og er það gert með því að veita styrki eftir því sem menningarmálanefnd Dalabyggðar telur þjóna markmiðum sjóðsins.

Umsækjendur í sjóðinn geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir með lögheimili í Dalabyggð.

Til úthlutunar árið 2022 eru 200.000 kr.-

Umsóknarfrestur er til og með 7. mars nk.

Umsóknum skal skila á dalir@dalir.is eða skrifstofu Dalabyggðar að Miðbraut 11, 370 Búðardal.

Úthlutunarreglur og umsóknareyðublað má nálgast hér fyrir neðan eða með því að smella hér: Menningarmálaverkefnasjóður

Úthlutunarreglur menningarmálaverkefnasjóðs Dalabyggðar

Umsóknareyðublað fyrir styrk úr menningarmálaverkefnasjóði (pdf skjal)

Umsóknareyðublað fyrir styrk úr menningarmálaverkefnasjóði (word skjal)

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei