Orkustofnun styrkir varmadælukaup

DalabyggðFréttir

Orkustofnun hvetur til umhverfisvænnar orkuöflunar við húshitun og bæta orkunýtni í rafhitun á landinu.

Með breytingum á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar var opnað á möguleika ríkisins til að taka þátt í stofnkostnaði við umhverfisvæna orkuöflun sem dregur úr rafhitun eða olíukyndingu. Hægt er að minnka rafhitun með ýmsu móti m.a. með varmadælum, viðarkyndingu o.s.frv.

Til íbúðareigenda sem nú hafa niðurgreidda rafhitun og vilja taka upp umhverfisvæna orkuöflun er möguleiki á að sækja um styrk. Um er að ræða eingreiðslustyrk vegna aðgerða sem leiða til betri orkunýtingar við húshitun.

Nánari upplýsingar má nálgast á vef Orkustofnunar: 
Eingreiðsla vegna umhverfisvænni orkuöflunar
Varmadælur

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei