Örsýning í Stjórnsýsluhúsinu

DalabyggðFréttir

Byggðasafn Dalamanna er með sýningu á jólakortum, jólatré og fleiru tengdu jólunum á 2. hæð stjórnsýsluhússins á aðventunni.
Á Byggðasafni Dalamanna er lítið af munum tengdum jólahaldi. Dalamenn eru því hvattir til að líta í kringum sig í jólastússinu og athuga hvort þeir lumi ekki á einhverju sem eigi heima á safninu. T.d. jólakort, jólapappír, jólaskraut, jólaföt eða annað skemmtilegt.
Hægt er að hafa samband við safnvörð, Valdísi Einarsdóttur. í síma: 430 4706, netfang:safnamal@dalir.is eða á skrifstofu héraðsskjalasafnsins á annarri hæð til vinstri í Stjórnsýsluhúsinu.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei