Yfirfærsla íbúða og undirritun viljayfirlýsingar

DalabyggðFréttir

Á 239. fundi sveitarstjórnar var bókað að komið væri tilboð frá Leigufélaginu Bríeti ehf. í eignir sveitarfélagsins við Stekkjarhvamm og Gunnarsbraut gegn yfirtöku á eignum og skuldum Dalabyggðar og eignarhlut í Leigufélaginu Bríeti ehf. Leigufélagið Bríet starfar með það að langtímamarkmiði að stuðla að nýsköpun og uppbyggingu íbúðahúsnæðis á þeim svæðum á landsbyggðinni þar sem þess er þörf, m.a. með …

Dalabyggð í sókn – niðurstöður könnunar

DalabyggðFréttir

Í september var gerð könnun meðal íbúa í tengslum við verkefnið Dalabyggð í sókn. Meðal þess sem verið var að kanna var sýn íbúa á styrkleika og samfélagið í Dölunum.   Dr. Bjarki Þór Grönfeldt frá Háskólanum á Bifröst mun kynna niðurstöður könnunarinnar í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar 5. desember kl. 17.00-18.00 Við hvetjum íbúa til að fjölmenna og heyra um niðurstöður …

Kaffihúsakvöld Auðarskóla

DalabyggðFréttir

Fimmtudagurinn 30. nóvember 2023 16:30 – Tendrað verður á jólatré við Silfurtún, að því loknu gengið að Auðarskóla og tendrað á trénu þar áður en Kaffihúsakvöld Auðarskóla hefst.

Dalabyggð greiðir þátttökugjald á Mannamót 2024

DalabyggðFréttir

Í tengslum við markaðssetningu ferðaþjónustu í Dalabyggð vill sveitarfélagið bjóða ferðaþjónum sem ætla sér að taka þátt á Mannamóti 2024 að greiða þátttökugjaldið fyrir þá. Þann 18. janúar 2024 er komið að hinni árlegu ferðakaupstefnu Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem fram fer í Kórnum í Kópavogi frá klukkan 12 til 17. Mannamót markaðsstofanna er hugsað sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og …

Íbúakönnun landshlutanna: Taktu þátt, hafðu hátt og sýndu mátt

DalabyggðFréttir

Fyrir rúmum þremur vikum fór Íbúakönnun landshlutanna af stað á öllu landinu. Könnunin er lögð fyrir íbúa allra landshluta á nokkra ára fresti. Sem fyrr er lögð áhersla á að spyrja þátttakendur aðallega um mat þeirra á búsetuskilyrðum, almenna velferð, stöðu þeirra á vinnumarkaði og hver framtíðaráform þeirra séu um búsetu. Gögn þessarar könnunar hafa nú þegar gefið þeim sem …

Jólatré og kaffihúsakvöld

DalabyggðFréttir

Í ár bjóðum við upp á smá nýbreytni sem við vonum að mælist vel fyrir. Skátafélagið Stígandi í samstarfi við Dalabyggð bjóða íbúum sem og öðrum að vera viðstödd þegar ljósin verða tendruð á jólatrjám í þorpinu.  Dagskrá hefst við Silfurtún kl.16:30 þar sem verður tendrað á fyrra trénu, dansað og sungið. Í framhaldi verður ljósganga að næsta tré við Auðarskóla þar sem ljósin …

Aukið vöruval í verslun KM þjónustunnar ehf. í Búðardal

SveitarstjóriFréttir

Við vekjum athygli á eftirfarandi tíðindum sem fram koma á facebook síðu KM þjónustunnar ehf. í Búðardal: „Nú erum við komnir af stað með smá matvöru og dagvöru verslun í K.M. þjónustunni. Hagstætt verð eftir bestu getu. Endilega kíkja við það koma einnig inn mjólkurvörur og brauðálegg og verður til í fyrramálið. Viljum einnig minna á að jóluvörurnar eru komnar …

Ljósin tendruð á jólatrénu 30. nóvember 2023

DalabyggðFréttir

Skátafélagið Stígandi í samstarfi við Dalabyggð bjóða íbúum sem og öðrum að vera viðstödd þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu við Auðarskóla fimmtudaginn 30. nóvember n.k. Dagskrá hefst í Dalabúð kl.16:00 þar sem verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur. Sögur segja að bræður úr fjöllunum muni kíkja í heimsókn. Við minnum ykkur á að koma klædd eftir veðri …

Frá kaffispjalli atvinnumálanefndar

DalabyggðFréttir

Miðvikudaginn 15. nóvember hélt atvinnumálanefnd Dalabyggðar kaffispjall í Nýsköpunarsetrinu. Tilgangur með kaffispjalli er að fólk komi og ræði saman um ákveðin þema án þess að eiginleg fundarstjórn sé í gangi eða eitthvað eitt afmarkað málefni sé á dagskrá. Þannig var allt starfssvið atvinnumálanefndar til umræðu og nefndarmenn svöruðu einnig spurningum sem komu upp. Það sem kom m.a. upp í umræðum …