Fréttir.

17.10.2018

Íslandsmeistarmótið í rúningi 2018

Ellefta Íslandsmeistaramótið í rúningi 2018 verður haldið á haustfagnaði FSD laugardaginn 27. október kl. 14 í reiðhöllinni í Búðardal. Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi 25. október til Fjólu í síma 695 6576 eða á netfangið kringla@simnet.is. Tvær umferðir eru og er betri umferðin látin gilda. Þrír efstu keppa síðan til úrslita. Úrslit og verðlaunaafhending verða að lokinni keppni.
Skoða betur
16.10.2018

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 166. fundur

166. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 18. október 2018 og hefst kl. 16. Í upphafi funda verður fundargerð sveitarstjórnar frá 13. september 2018 lögð fram til afgreiðslu.   Dagskrá Almenn mál 1. Fjallskil 2018 Kynnt á fundi Sveitarstjórnar Dalabyggðar 13.10.2018, lagt fram til afgreiðslu. 2. Fjárhagsáætlun 2018 – Viðauki 3 Úr fundargerð 208. fundar Byggðaráðs Dalabyggðar 10.10.2018. Fjárhagsáætlun 2018
Skoða betur
12.10.2018

Kór Glerárkirkju

Kór Glerárkirkju heldur tónleika í Hjarðarholtskirkju laugardaginn 13. október kl. 13. Fjölbreytt efnisskrá. Miðaverð kr. 1.500. Kór Glerárkirkju í Hjarðarholtskirkju – fb
Skoða betur
09.10.2018

Skrifstofa Dalabyggðar

Opnunartími skrifstofu Dalabyggðar verður kl. 10-12 föstudaginn 12. október. Þ.e. lokað frá og með kl. 12.
Skoða betur
09.10.2018

Haustfagnaður FSD 2018

Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu heldur árlegan haustfagnað sinn helgina 26.-28. október. Um er að ræða einn stærsta viðburð sem Dalirnir bjóða upp á og inniheldur meðal annars sviðaveislu, hagyrðinga, hrútasýningar, rúningskeppni, markað, grillveislu, dansleiki og margt fleira skemmtilegt. Einstakir viðburðir og heildardagskrá verður kynnt betur þegar nær dregur.
Skoða betur
08.10.2018

Íslandsmeistaramótið í rúningi 2018

Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu stendur fyrir Íslandsmeistarmótinu í rúningi laugardaginn 27. október kl. 14 í reiðhöllinni, Búðardal. Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi fimmtudaginn 25. október til Fjólu í síma 695 6576 eða á netfangið kringla@simnet.is. Rúningsmenn af báðum kynjum og alls staðar af landinu eru hvattir til að mæta og taka þátt í keppninni. Vegleg verðlaun í boði
Skoða betur
08.10.2018

Auðarskóli – frístundaleiðbeinandi

Auðarskóli leitar eftir starfsmanni í stöðu frístundaleiðbeinanda við Auðarskóla frá og með 8. október 2018. Um er að ræða 20% stöðu. Umsóknarfrestur er til 12. október 2018. Helstu verkefni eru starf með börnum í frístund. Unnið er samkvæmt starfslýsingu frístundaleiðbeinanda. Hæfniskröfur eru færni í samskiptum, frumkvæði í starfi, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og stundvísi. Upplýsingar um starfið veitir Hlöðver Ingi
Skoða betur
06.10.2018

Ljósmyndasamkeppni FSD

FSD mun standa fyrir ljósmyndasamkeppni á haustfagnaði helgina 26.-28. október. Þemað í ár er sauðfjárbúskapur. Skila þarf inn myndum fyrir 21. október 2018 á netfangið thorunn.th@hotmail.com. Eftir það verða þær allar birtar á facebooksíðu félagsins.
Skoða betur
04.10.2018

Samfélagslegar áskoranir Íslands

Vísinda- og tækniráð Íslands efnir til opins samráðs við almenning og hagsmunaaðila um skilgreiningu þeirra framtíðaráskorana sem vísindi og rannsóknir ættu markvisst að takast á við. Markmið þess er að fá fram fjölbreytt sjónarmið og ábendingar sem geta eflt forgangsröðun fjárfestinga í rannsóknum og nýsköpun hér á landi. Á grundvelli gagna úr samráðinu verða skilgreind þrjú til fimm áherslusvið og
Skoða betur
04.10.2018

Héraðsbókasafn – sýning

Í tilefni tuttugu ára afmælis Glímufélags Dalamanna er sýning á verðlaunagripum, ljósmyndum og búningum félagsins á Héraðsbókasafni Dalasýslu. Héraðsbókasafnið er opið þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13-18.
Skoða betur
01.10.2018

Viðvera atvinnuráðgjafa

Ólafur Sveinsson atvinnuráðgjafi verður með viðveru í Dalabyggð þriðjudaginn 2. október kl. 10-12.
Skoða betur
25.09.2018

Uppbyggingasjóður Vesturlands

Opið er fyrir umsóknir í Uppbyggingasjóð Vesturlands til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Tilgangur Uppbyggingarsjóðs Vesturlands er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Uppbyggingarsjóðurinn er samkeppnissjóður. Umsóknir eru þær metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í samningi um Sóknaráætlun Vesturlands 2015-2019 og þeim áherslum sem eru í verklags- og úthlutunarreglum sjóðsins. Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á
Skoða betur
Fréttir.