Refa og minkaveiðar 2023 – 2025

DalabyggðFréttir

Dalabyggð auglýsir eftir áhugasömum veiðimönnum til að sinna refa- og minkaveiðum í Dalabyggð árin 2023 til 2025.

Veiðimenn skulu vera með gilt veiðikort, staðkunnátta og reynsla af refa- og minkaveiðum er æskileg.

Núverandi veiðimenn sveitarfélagsins eru hvattir til að sækja aftur um og halda áfram sínu góða starfi.
Refaveiðinni er skipt upp í 13 svæði eins og verið hefur undanfarin ár og fyrirkomulag minkaveiða verður óbreytt.
Sveitarfélagið mun gera skriflega samninga við veiðimenn.

Áhugasamir hafi samband í síma 894 0013 eða á netfangið vidar@dalir.is fyrir 19. apríl 2023

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei