Sérstakur íþrótta- og tómstundastyrkur

DalabyggðFréttir

Á þitt barn rétt á 45.000 kr. sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk?

Kannaðu málið með því að smella HÉR.

Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars–júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. fyrir hvert barn.

Áður en þú sækir um styrkinn hjá þínu sveitarfélagi þarf að kanna hvort heimilið falli undir ofangreint tekjuviðmið. Það gerir þú með því að skrá þig inn á Ísland.is með rafrænum skilríkjum. Athugið að sé um hjón/sambúðarfólk að ræða þurfa báðir aðilar að samþykkja að upplýsingar um tekjur séu sóttar til skattayfirvalda (RSK) svo hægt sé að staðfesta hvort heimilið falli undir tekjuviðmiðið eða ekki.

Ef þú færð svar um að þú eigir rétt á að sækja um styrk færð þú nánari upplýsingar um næstu skref. Ef þú færð svar um að þú eigir ekki rétt á styrk færð þú upplýsingar um hvert þú getur leitað ef þú ert með athugasemdir við niðurstöðuna eða fyrirspurnir.

Hægt er að sækja um styrk til og með 1.mars 2021.

Miðað er við að íþrótta- og tómstundaiðkunin fari fram á skólaárinu 2020–2021.

Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna og fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga.
Reglur Dalabyggðar má nálgast með því að smella HÉR.
Fyrirspurnum um styrkina skal beina til skrifstofu Dalabyggðar.

Eyðublað fyrir sérstakan íþrótta- og tómstundastyrk.

Nánari upplýsingar má nálgast með því að smella HÉR.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei