Sjálfboðavinnuverkefni

DalabyggðFréttir

Umsóknarfrestur um sjálfboðavinnuverkefni Dalabyggðar er til 30. apríl 2015. Byggðarráð afgreiðir umsóknir. Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta til að hrinda í framkvæmd brýnum umhverfisverkefnum í næsta nágrenni sínu.
Almenn skilyrði fyrir úthlutun framlaga eru að umsækjandi eigi lögheimili í Dalabyggð, sé ekki í vanskilum við sveitarfélagið og að umsókninni fylgi lýsing á verkefni og kostnaðaráætlun.
Forsvarsmaður verkefnis skal hafa samráð við verkstjóra Dalabyggðar um framkvæmd verkefnisins.
Skilyrði fyrir greiðslum er að verkefnið sé unnið í samræmi við umsókn, greiðslur verða aldrei hærri en framlögð áætlun og að greiðslur renna að jafnaði til þeirra aðila sem gefa út reikninga vegna vöru- eða þjónustukaupa.

Reglur um sjálfboðavinnuverkefni

Umsóknareyðublöð um sjálfboðavinnuverkefni

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei