Sturluhátíð

DalabyggðFréttir

Í tilefni þess að í ár eru liðin 800 ár frá fæðingu Sturlu Þórðarsonar sagnaritara og skálds er íbúum Dalabyggðar og gestum þeirra hér með boðið til Sturluhátíðar.
Hátíðin fer fram í félagsheimilinu Tjarnarlundi í Saurbæ sunnudaginn 27. júlí og hefst kl. 13:30. Í lok hátíðarinnar, um kl. 15:30, verður haldið að Staðarhóli þar sem Sturla bjó um árabil og er jarðsettur.
Heiðursgestur hátíðarinnar er Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands.
Samkoman hefst klukkan 13.30 með setningarávarpi Sveins Pálssonar sveitarstjóra Dalabyggðar. Forsetar Alþingis Einar K. Guðfinnson og norska stórþingsins Olemic Tommessen munu flytja ávörp. Guðrún Nordal forstöðumaður stofnunar Árna Magnússonar flytur erindi um arfleifð Sturlu Þórðarsonar og Einar Kárason rithöfundur flytur efni um Sturlu sem hann kallar „Hann vissi ég alvitrastan og hófsamastan.“
Elísabet Haraldsdóttir menningarráðunautur fjallar um Sturluþing barna sem efnt verður til í samvinnu við barnaskóla á Vesturlandi næsta vetur. Þá gera Halla Steinólfsdóttir bóndi og Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur grein fyrir efninu: Dalirnir og Sturla, framtíðarsýn.
Steindór Andersen og Hilmar Örn Hilmarsson flytja rímur.
Samkomunni í Tjarnarlundi lýkur upp úr klukkan þrjú með lokaorðum Sigurðar Þórólfssonar bónda í Innri-Fagradal.
Eftir samkomuna í Tjarnarlundi verður farið að Staðarhóli þar sem Sturla bjó og þar fjallar Magnús A. Sigurðsson fornleifafræðingur um hugsanlegar rannsóknir á Staðarhóli.
Upplýsingar um gistimöguleika í Dölum má finna á vefsíðunni VisitDalir.is eða á upplýsingamiðstöð Dalabyggðar í síma 434 1441.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni http://sturla800.wix.com/sturlathordarsoneða hjá Svavari Gestssyni gestsson.svavar@gmail.com- Þórunni Maríu Örnólfsdóttur tho27@hi.is gsm. 845 6676 – eða á skrifstofu Dalabyggðar.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei