Tunglskotin heim í hérað II

DalabyggðFréttir

Skapandi vinnustofa um vistkerfi nýsköpunar í dreifðum byggðum. Unnið verður að hagnýtum leiðum til að styðja við nýsköpun í íslenskum landsbyggðum.

Undanfarin tvö ár hefur farið fram skapandi ferli sem fólst í að skynja, skilja og skilgreina vistkerfi nýsköpunar í dreifðum byggðum.

Að því hafa komið frumkvöðlar, fræðafólk og stuðningsumhverfi nýsköpunar úr ýmsum áttum gegnum fundi, vinnustofur, rannsóknir og viðtöl. Þessi skapandi vinnustofa verður haldin að Laugum í Sælingsdal.

Sjá nánari upplýsingar hér: Tunglskotin heim í hérað II

Nú er komið að síðasta kafla verkefnisins, sem verður, ef vel tekst til, upphafið að nýjum leiðum til að styðja vistkerfi nýsköpunar í dreifðum byggðum.

Öllum þeim sem láta sig nýsköpun í íslenskum landsbyggðum varða og eru tilbúin til að ljá þeim krafta sína í tvo daga, er boðið að taka þátt.

Á vinnustofunni þróa þátttakendur saman hugmyndir í átt að raunhæfum verkefnum sem ætlað er að styðja við nýsköpunarvisterfið. Afrakstur þessarar þróunarvinnu verður svo gjöf til íslensks nýsköpunarumhverfis sem öllum verður frjálst að hagnýta.

Viðburðurinn er hluti af Nýsköpunarvikunni 2023. Verkefnið Að rækta nýsköpun í dreifðum byggðum er stutt af Markáætlun um samfélagslegar áskoranir.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei