Umsjónarmaður dreifnáms – afleysingar

DalabyggðFréttir

Menntaskóli Borgarfjarðar óskar eftir að ráða starfsmann í afleysingar í 60% starf til að hafa umsjón með dreifnámi við framhaldsskóladeild í Búðardal frá 7. apríl næstkomandi.
Í starfinu felst m.a. dagleg umsjón með nemendum, eftirlit með skólasókn, aðstoð við nemendur í kennslustundum, samskipti við kennara MB, umsjón með námsaðstöðu og tækjabúnaði og umsjón með námslotum í Borgarnesi.

Hæfniskröfur eru hæfni í mannlegum samskiptum, menntun sem nýtist í starfi og áhugi á að byggja upp dreifnám í Búðardal.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir skólameistari, gudrunbjorg@menntaborg.is eða í síma 433 7700 / 894 1076.
Umsóknarfrestur er til 22. febrúar nk. og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá til Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 54, 310 Borgarnes eða á netfangið gudrunbjorg@menntaborg.is
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei