| |
1. 1809023 - Skólastefna Dalabyggðar | |
Formaður og varaformaður fræðslunefndar ásamt skólastjóra, leggja til að næstu skref í gerð og vinnu við skólastefnu/menntastefnu verði að fá aðra hagaðila að borði. Mikilvægt er að kennarar og aðrir starfsmenn skólans svo og skólaráð skólans komi einnig að gerð skólastefnu/menntastefnu. Lagt er til að skólastjóri leggi núverandi drög fyrir skólaráð og starfsmenn skólans. | | |
|
2. 2304021 - Auðarskóli skólareglur | |
Fræðslunefnd samþykkir að fela skólastjóra að kynna uppfærða tillögu að skólareglum Auðarskóla, í ljósi umræðna á fundinum, fyrir skólaráði og leggja síðan í kjölfarið fyrir fræðslunefnd á fundi í lok maí 2023. | | |
|
3. 2301063 - Reglur um skólasókn í Auðarskóla | |
Erindið framlagt og rætt. Mikilvægt er að reglurnar, tilgangur og uppbygging þeirra verði kynntar vel fyrir næsta skólaár. Sveitarstjóra falið, í samstarfi við skólastjóra, að svara bréfritara. | | |
|
4. 2304020 - Skólapúls 2023 | |
Farið yfir stöðu mála. | | |
|
5. 2210027 - Skólastarf Auðarskóli 2022-2023 | Skólastjóri fer yfir stöðu mála í Auðarskóla, leik- og grunnskóla.. Kynnt drög að reglum um móttöku gestanemenda í Auðarskóla. Fræðslunefnd tekur jákvætt í að settar verði reglur varðandi gestanemendur og kynni fyrirliggjandi drög fyrir skólaráði og fræðslunefnd taki reglurnar til afgreiðslu á næsta fundi. Skólastjóri kynnti fyrirkomulag varðandi skólaslit í vor og verður það kynnt fyrir nemendum og forráðamönnum á næstunni. Skóladagatal fyrir leikskóla lagt fram og verður það kynnt fyrir skólaráði á fundi á næstunni. | | |
|
6. 2305001 - Skólaþjónusta | |
Fræðslunefnd styður það að leita samninga við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri varðandi aðstoð við Auðarskóla. | | |
|
7. 2010009 - Framhaldsnám fyrir ungmenni úr Dalabyggð | |
| |
|
Jón Egill tómstundafulltrúi Dalabyggðar sat fundinn undir lið 8.
| 8. 2208010 - Tómstundir - sumar 2023 | |
Íþróttafélagið Undri hefur kynnt metnaðarfullt sumarnámskeið í fjórar vikur og lýsir fræðslunefnd mikilli ánægju með það hvernig að málum hefur verið staðið. Gjaldskrá hefur verið kynnt og er gjaldtakan mjög hófleg í öllum samanburði við önnur sveitarfélög.
| | |
|
9. 2304010 - Félagsmiðstöð ungmenna | |
Afgreiðslu frestað til næsta fundar. | | |
|
| |
10. 2304011 - Erindi frá Samtökunum 22 - hagsmunasamtökum samkynhneigðra | |
| |
|
11. 2301067 - Starfsmannamál | |
| |
|