Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 257

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
10.06.2025 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir oddviti,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varaoddviti,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Eyjólfur Ingvi Bjarnason aðalmaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Garðar Freyr Vilhjálmsson aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri
Lagt er til að mál nr. 2504020, Fjallskil 2025, verði tekið á dagskrá og verði dagskrárliður nr. 11.

Lagt er til að mál nr. 2505005, Aðalfundur Fjárfestingafélagsins Hvamms, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður nr. 18.

Aðrir liðir færast til í samræmi við það.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2205013 - Kjör oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar Dalabyggðar
Samkvæmt 7.gr. samþykkta Dalabyggðar skal sveitarstjórn kjósa oddvita og varaoddvita. Skulu þeir kjörnir til eins árs í senn.


Lagt til að Ingibjörg Þóranna Steinudóttir verði oddviti Dalabyggðar til eins árs.
Samþykkt samhljóða.

Lagt til að Þuríður Jóney Sigurðardóttir verði varaoddviti til eins árs.
Samþykkt samhljóða.
2. 2205014 - Kosning aðal- og varamanna í byggðarráð sem og formanns og varaformanns byggðarráðs.
Samkvæmt 27. gr. samþykkta Dalabyggðar skal kjósa þrjá aðalmenn og jafn marga varamenn í byggðarráð til eins árs. Einnig þarf að kjósa árlega formann og varaformann byggðarráðs.


Lagt til að Skúli Hreinn Guðbjörnsson, Garðar Freyr Vilhjálmsson og Guðlaug Kristinsdóttir verði aðalmenn í byggðarráði til eins árs.
Samþykkt samhljóða.

Lagt til að Þuríður Jóney Sigurðardóttir, Einar Jón Geirsson og Ingibjörg Þóranna Steinudóttir verði varamenn í byggðarráði til eins árs.
Samþykkt samhljóða.

Lagt til að Skúli Hreinn Guðbjörnsson verði formaður byggðarráðs til eins árs.
Samþykkt samhljóða.

Lagt til að Garðar Freyr Vilhjálmsson verði varaformaður byggðarráðs til eins árs.
Samþykkt samhljóða.
3. 2205015 - Kosning í nefndir skv. A-hluta 48 gr. samþykkta Dalabyggðar
Fyrir liggur að kjósa þarf í Fjallskilanefnd Skarðsstrandar einn aðalmann og einn varamann í ljósi þess að fulltrúar þeir sem gegnt hafa fyrrgreindum hlutverkum síðan skipað var í nefndina á 221. fundi sveitarstjórnar eru fluttir úr sveitarfélaginu.
Lagt er til að Hákon Óli Ingimundarson verði aðalmaður og Elísabet Hildur Haraldsdóttir verði varamaður í Fjallskilanefnd Skarðsstrandar.
4. 2306021 - Fundir sveitarstjórnar sumarið 2025
Lagt er til að fundur sveitarstjórnar í júlí falli niður vegna sumarleyfa.
Næsti fundur sveitarstjórnar verði að óbreyttu haldinn fimmtudaginn 21. ágúst.
Á meðan sveitarstjórn er í sumarleyfi fer byggðarráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella sbr. 32. grein samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar nr. 391/2018 með síðari breytingum.

5. 2407002 - Fjárhagsáætlun 2025-2028 - sala eigna
Á 366. fundi byggðarráðs var framlagt undirritað og samþykkt kauptilboð í félagsheimilið Árblik.

Afgreiðsla byggðarráðs er hér lögð fram í sveitarstjórn til staðfestingar.

Til máls tók SHG.

Skúli tók ekki þátt í afgreiðslu fundarins

Sveitarstjórn staðfestir með 6 atkvæðum ákvörðun byggðarráðs og staðfestir hér með sölu á félagsheimilinu Árbliki.
6. 2209012 - Laugar í Sælingsdal
Á 336. fundi byggðarráðs var sveitarstjóra falið að undirrita fyrirliggjandi kaupsamning vegna sölu á tilteknum hluta lands og eigna að Laugum í Sælingsdal, byggt á kaupleigusamningi frá því árið 2022.
Kaupsamningurinn er hér lagður fram í sveitarstjórn til staðfestingar.


Til máls tók EJG.

Sveitarstjórn samþykkir og staðfestir þar með framkomin kaupsamning.
7. 2505010 - Fjárhagsáætlun 2025 - Viðauki III
Á 336. fundi byggðarráðs var eftirfarandi tillaga að viðauka III við fjárhagsáætlun 2025 samþykkt:

"Framlögð tillaga að Viðauka III við fjárhagsáætlun 2025.

Rekstrarkostnaður A-hluta

Samtals tekjuaukning A-hluta kr. 17.332.000 til hækkunar á handbæru fé.

Eignfærslur

Samtals eignfærslur kr. 1.700.000 til lækkunar á handbæru fé.

Samþykkt samhljóða."

Samþykkt byggðarráðs er hér lögð fram til staðfestingar í sveitarstjórn Dalabyggðar.

Sveitarstjórn samþykkir framkomin viðauka III.
Viðauki_3..pdf
8. 2505024 - Afskriftir 2025
Á 336. fundi byggðarráðs var lögð fram tillaga að afskriftum vegna útistandandi krafna sem ekki hefur tekist að innheimta á undanförnum árum, samtals kr. 1.566.957,- Byggðarráð samþykkti tillöguna.

Afgreiðsla byggðarráðs er hér lögð fram í sveitarstjórn til staðfestingar.

Sveitastjórn staðfestir hér með framkomna tillögu að afskriftum.
9. 2410009 - Fjallskilasamþykkt
Á 255. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar fór fram fyrri umræða um uppfærða fjallskilasamþykkt Dalabyggðar og var hún þar afgreidd til seinni umræðu.
Á 256. fundi var samþykkt að fresta annarri umræðu til næsta fundar m.a. í því ljósi að upplýsa fjallskilanefndir aðliggjandi sveitarfélaga fyrir samræmingu dagsetninga. Hefur það verið gert og ekki borist athugasemdir.
Byggðarráð fjallaði einnig um málið á 336. fundi sínum og vísaði þar málinu til annarrar umræðu í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn samþykkir hér með við síðari umræðu uppfærða Fjallskilasamþykkt Dalabyggðar.
FJALLSKILASAMÞYKKT_Dalabyggðar_seinni_umraeda.pdf
10. 2412009 - Könnunarviðræður Dalabyggðar og Húnaþings vestra
Síðari umræða
Á fundi sveitarstjórnar þann 8.maí sl. samþykkti sveitarstjórn að hefja formlegar sameiningarviðræður við sveitarstjórn Húnaþings vestra skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Sveitarstjórn skipaði jafnframt tvo aðalfulltrúa og til vara í samstarfsnefnd sem skal kanna möguleika á sameiningu sveitarfélaganna og vísaði málinu til síðari umræðu.



Til máls tók EJG.

Lagt er hér til að sveitarstjórn Dalabyggðar staðfesti hér við seinni umræðu fyrri ákvörðun um að hefja viðræður um sameiningu við sveitarstjórn Húnaþings vestra og skipun fulltrúa í samstarfsnefnd.
Aðalfulltrúar Dalabyggðar í samstarfsnefnd verða Ingibjörg Þóranna Steinudóttir og Skúli Hreinn Guðbjörnsson.
Varafulltrúar Dalabyggðar í samstarfsnefnd verða Þuríður Sigurðardóttir og Guðlaug Kristinsdóttir.
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri mun starfa með nefndinni.

Samþykkt samhljóða.
Könnunarviðræður Dalabyggðar og Húnaþings vestra - Forsendur 6. maí 2025 v3..pdf
11. 2504020 - Fjallskil 2025
Sveitarstjórn beinir því til fjallskilanefnda að ljúka undirbúningi vegna fjallskila fyrir fund sveitarstjórnar 21. ágúst vegna fjallskila haustið 2025.
Fjártölur verða sendar til fjallskilanefnda.

Samþykkt samhljóða.
Fundargerðir til kynningar
12. 2505001F - Byggðarráð Dalabyggðar - 336
12.1. 2407002 - Fjárhagsáætlun 2025-2028
Sala á félagsheimilinu Árbliki. Framlagt undirritað og samþykkt kauptilboð í eignina.
Byggðarráð samþykkir framlagt kauptilboð og vísar málinu til sveitarstjórnar.
12.2. 2209012 - Laugar í Sælingsdal - samskipti
Sveitarstjóri fór yfir stöðu mála en unnið er að lokafrágangi á sölu húseigna og landspildu til kaupleigutaka á grundvelli samnings frá því í júlí 2022.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá kaupsamningi og undirritun vegna sölu á Laugum.
12.3. 2410009 - Fjallskilasamþykkt
Sveitarstjórn Dalabyggðar tók til fyrri umræðu tillögu að uppfærðri fjallskilasamþykkt á 255. fundi sínum. Á 256. fundi sveitarstjórnar sem haldinn var 8. maí sl. var samþykkt að fresta seinni umræðu til næsta fundar og í millitíðinni að hafa samband við fjallskilanefndir aðliggjandi sveitarfélaga fyrir samræmingu dagsetninga.
Byggðarráð vísar málinu til annarrar umræðu í sveitarstjórn.
12.4. 2505009 - Fjárhagsáætlun 2025 - staða eftir fyrsta ársþriðjung
Framlagt yfirlit yfir stöðu á rekstri á fyrsta ársþriðjungi ársins 2025 m.t.t. fjárhagsáætlunar.
Farið yfir stöðuna á rekstri á fyrsta ársþriðjungi 2025.
Reksturinn er í jafnvægi í samanburði við fjárhagsáætlun ársins.
12.5. 2505010 - Ársreikningur 2025 - Viðauki III
Framlögð tillaga að Viðauka III við fjárhagsáætlun 2025.
Rekstrarkostnaður A-hluta

Samtals tekjuaukning A-hluta kr. 17.332.000 til hækkunar á handbæru fé.

Eignfærslur

Samtals eignfærslur kr. 1.700.000 til lækkunar á handbæru fé.
12.6. 2505024 - Afskriftir 2025
Lögð fram tillaga að afskriftum vegna útistandandi krafna sem ekki hefur tekist að innheimta á undanförnum árum.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að afskriftum og vísar málinu til sveitarstjórnar.
12.7. 2503006 - Úrgangsþjónusta - útboð 2025
Framlagður undirritaður samningur við Consensa um innkaupaþjónustu og ráðgjöf varðandi undirbúning og framkvæmd á útboði vegna úrgangsþjónustu.
Framlögð tillaga að útboðsgögnum.
Byggðarráð felur sveitarstjóra og umsjónarmanni framkvæmda að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og koma útboðinu í loftið.
12.8. 2505016 - Fjárhagsáætlun 2026-2029
Farið yfir drög að tímalínu fjárhagsáætlunarvinnu vegna áranna 2026-2029.
Byggðarráð samþykkir framlagða tímalínu að vinnu við fjárhagsáætlun 2026-2029.
12.9. 2505008 - Laun vinnuskóla 2025
Lögð fram tillaga að launum fyrir vinnuskóla Dalabyggðar sumarið 2025 og farið yfir skipulag starfsins í sumar. Sigríður Jónsdóttir heldur utan um starf vinnuskólans líkt og undanfarin sumur.
Hækkun pr. tíma er 3,5% fyrir árið 2025.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að hækkun launataxta vinnuskóla.
12.10. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal 2024
Farið yfir stöðu framkvæmda við íþróttamiðstöðina.
Rætt um tækja- og húsbúnað sem og möguleika í samstarfi og samvinnu við ungmennafélagið Ólaf pá kunna að vera fyrir hendi.
Farið yfir stöðu framkvæmda.

12.11. 2411015 - Málefni Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda bs
Rætt um málefni Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda bs. í ljósi endurskoðunar á samstarfssamningi frá árinu 2019.
Endurskoðun á starfsemi stendur yfir en að öðru óbreyttu verður sama fyrirkomulag út árið 2025.
12.12. 2505021 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka
Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við umræður á fundinum.
12.13. 2505022 - Samningur um barnaverndarþjónustu
Sveitarstjóri kynnti stöðu viðræðna um mögulega aðild Dalabyggðar að barnaverndarþjónustu.
Staða mála kynnt. Sveitarstjóra og verkefnastjóra fjölskyldumála falið að vinna málið áfram.
12.14. 2301067 - Starfsmannamál
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála varðandi nýjar og uppfærðar stefnur og reglur er varða starfsmannamál og starfsmannahald sbr. umræður á 335. fundi byggðarráðs.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
12.15. 2506001 - Lóðir til úthlutunar í Búðardal
Rætt um lausar lóðir í Búðardal og hverjar þeirra eigi að setja í auglýsingu.
Byggðarráð leggur til að auglýstar verði lóðirnar Ásuhvammur 1, 3, 6, 8 og 10, Bakkahvammur 2, 13, 20-26 og 28-34 ásamt Lækjarhvammi 24 og 26. Einnig er sveitarstjóra falið að auglýsa aðrar lausar lóðir við eldri götur í Búðardal þegar skipulagsferli vegna þeirra er lokið.
12.16. 2210026 - Uppbygging innviða - íbúðarhúsnæði
Þann 4.júní sl. var tekin fyrsta skóflustunga að parhúsi við Borgarbraut í Búðardal sem Leigufélagið Bríet byggir. Ljóst er að þörf er að frekari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis i Dalabyggð og því er llagt til að sveitarstjóra verði falið að senda erindi til stjórnar Leigufélagsins Bríetar með ósk um enn frekari uppbyggingu húsnæðis við sömu götu í Búðardal.

Einnig var rætt um önnur möguleg verkefni tengd íbúðauppbyggingu í Dalabyggð.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að senda erindi á Leigufélagið Bríet.

Einnig rætt um önnur möguleg verkefni tengd íbúðauppbyggingu í Dalabyggð.
12.17. 2505023 - Áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja)
Í Samráðsgátt stjórnvalda eru til umsagnar áform um lagasetningu.
Lagt er til að fella úr gildi undanþágu rafveitna (vatnsafls-, jarðvarma- og vindaflsvirkjana) frá fasteignamati.
Innviðaráðherra áformar að leggja fram frumvarp þess efnis á haustþingi.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að senda inn umsögn fyrir hönd Dalabyggðar í samræmi við umræður á fundinum.
13. 2505002F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 141
13.1. 2501027 - Farsæld barna í Dalabyggð
Á fundinn mæta þau Heiðar Mar Björnsson og Álfheiður Sverrisdóttir svæðisfulltrúar á Vesturlandi og Bára Daðadóttir verkefnisstjóri farsældar hjá SSV til að ræða þau tækifæri sem til staðar eru í Dalabyggð til uppbyggingar á þjónustu við börn og ungmenni tengd farsæld barna og starfsemi svæðisfulltrúa í landshlutanum.
13.2. 2505001 - Lýðheilsa
Rætt um undirbúning að gerð Lýðheilsustefnu fyrir Dalabyggð og önnur heilsueflandi verkefni.
Fræðslunefnd felur lýðheilsufulltrúa að vinna frumdrög að verkáætlun við undirbúning á gerð lýðheilsustefnu fyrir Dalabyggð sem og að kanna hvað Dalabyggð þurfi að uppfylla til að verða aðili að "Heilsueflandi samfélagi" sem er heildræn nálgun sem embætti landlæknis vinnur að í samstarfi og samráði við sveitarfélög, opinberar stofnanir, frjáls félagasamtök o.fl.
Málið verður rætt áfram á næsta fundi fræðslunefndar.
13.3. 2412001 - Félagsmiðstöðin Gildran
Farið yfir stöðu mála í starfsemi félagsmiðstöðvarinnar það sem af er og einnig rætt um mögulega útfærslu á starfsemi á komandi hausti.
Rætt var um hvort félagsmiðstöðin geti fengið aðild að Abler skráningarkerfinu sem nú er komið á í tómstundastarfi og tónlistarskólanum, lýðheilsufulltrúa falið að skoða kosti þess í samvinnu við skrifstofu Dalabyggðar.
Varðandi starfið á komandi hausti er verið að skoða með starfsmannamál og verður unnið í þeim málum í framhaldinu.
Rætt um mögulega viðburði á komandi starfsári sem og almennar reglur í kringum starfsemina.
13.4. 2501009 - Málefni grunnskóla 2025
Skólastjóri kynnti drög að uppfærðum skólareglum og stöðu mála er varðar daglegt starf í grunnskólanum.
Kynnt var skipulag, verkferlar og hlutverk innan stundarskrár á komandi skólaári.
Skólastjóri fór yfir stöðu í starfsmannamálum og horfur á komandi skólaári.
Fræðslunefnd skoðar framkomin drög að skólareglum á milli funda og afgreiðir á næsta fundi.
Fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við framkomna tillögu að skipulagi innan stundarskrár á komandi skólaári.
13.5. 2501010 - Málefni leikskóla 2025
Skólastjóri kynnti stöðu mála er varðar daglegt starf í leikskólanum.
Lögð var fram tillaga að skóladagatali leikskólans á komandi skólaári.
Fræðslunefnd samþykkir framkomna tillögu að skóladagatali.
14. 2505006F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 45
Til máls tók EJG.
14.1. 2410020 - Jörvagleði 2025
Uppgjör Jörvagleði 2025.
Hátíðin fór vel fram, nefndin þakkar öllum sem komu að dagskránni með einum eða öðrum hætti.
14.2. 2404001 - DalaAuður - staða mála
Linda Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Dala Auðs kemur á fund nefndarinnar.
Linda fer yfir stöðu DalaAuðs, farið yfir þau verkefni sem snúa að menningarmálum. Rætt um verkefni sem hlotið hafa styrk úr C.01 (Byggðaáætlun).

Nefndin þakkar Lindu fyrir komuna og samtalið.
14.3. 2505015 - 17. júní 2025
Skipulag fyrir hátíðarhöld 17. júní.

Póstur var sendur á félagasamtök og forsvarsmenn félaga í Dalabyggð.
Pósturinn var ítrekaður og fylgt eftir. Möguleiki á þátttöku eins félags í dagskrá.
Nefndin ræðir dagskrá fyrir 17. júní.
Verkefnastjóra falið að vinna áfram að málinu.
14.4. 2506002 - Barnamenningarhátíð Vesturlands 2025
Stefnt er að Barnamenningarhátíð Vesturlands í október.
Nefndin ræðir aðkomu Dalabyggðar og framkvæmd.
Nefndin leggur til að framkvæmd verði könnun meðal barna og unglinga í Dalabyggð með hvað þeim langar að sjá á hátíðinni. Nefndin mun funda með starfsmönnum sveitarfélagsins og menningarfulltrúa Vesturlands í byrjun júlí til að ræða skipulag og hugmyndir.
15. 2408002 - Ungmennaráð 2024-2025
Framlagðar fundargerðir ungmennaráðs það sem af er starfsársins.
Ungmennaráð Dalabyggðar_fundargerð_19.03.2025..pdf
Ungmennaráð Dalabyggðar_fundargerð_ 12.11.2024..pdf
Ungmennaráð Dalabyggðar_Fundargerð_7.10.2024..pdf
16. 2501003 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2025
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 979..pdf
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 980..pdf
17. 2501005 - Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2025
Fundur-231..pdf
Fundur-230..pdf
18. 2505005 - Aðalfundargerð Fjárfestingafélagsins Hvamms
Aðalfundur 2025..pdf
Ársreikningur 2025..pdf
Mál til kynningar
19. 2501008 - Skýrsla sveitarstjóra 2025
257. fundur 10. júní 2025.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:45 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei