| |
1. 2209004 - Jörvagleði 2023 | |
Ásmundi Sveinssyni verður gert hátt undir höfði. Farið verður í að safna þátttakendum í einstaka dagskrárliði. Setningarathöfn verður á miðvikudagskvöldinu. Stefnt að kvöldviðburðum alla hátíðina. Félög, íbúar og fyrirtæki verði hvött til þátttöku. Unnið áfram að dagskránni. | | |
|
2. 2005013 - Menningarviðburðir í Dalabyggð | |
Nefndin ræðir möguleika á fleiri og smærri viðburðum, hvernig sé hægt að útbúa þá og skipuleggja. Viðburði í aðventunni, viðburði nærri páskum og að sumri.
Menningarmálanefnd hvetur íbúa til að hafa samband við nefndina ef þeir hafa hugmyndir varðandi viðburði og minnir á menningarmálaverkefnasjóðinn sem verður auglýstur 2. desember n.k. þar sem hægt er að sækja um fyrir viðburði og fleira menningartengt. | | |
|