| |
Guðný Erna Bjarnadóttir lýðheilsufulltrúi sat fundinn undir liðum 1 til 3.
| 1. 2501027 - Farsæld barna í Dalabyggð | |
| |
|
2. 2505001 - Lýðheilsa | |
Fræðslunefnd felur lýðheilsufulltrúa að vinna frumdrög að verkáætlun við undirbúning á gerð lýðheilsustefnu fyrir Dalabyggð sem og að kanna hvað Dalabyggð þurfi að uppfylla til að verða aðili að "Heilsueflandi samfélagi" sem er heildræn nálgun sem embætti landlæknis vinnur að í samstarfi og samráði við sveitarfélög, opinberar stofnanir, frjáls félagasamtök o.fl. Málið verður rætt áfram á næsta fundi fræðslunefndar. | | |
|
3. 2412001 - Félagsmiðstöðin Gildran | |
Rætt var um hvort félagsmiðstöðin geti fengið aðild að Abler skráningarkerfinu sem nú er komið á í tómstundastarfi og tónlistarskólanum, lýðheilsufulltrúa falið að skoða kosti þess í samvinnu við skrifstofu Dalabyggðar. Varðandi starfið á komandi hausti er verið að skoða með starfsmannamál og verður unnið í þeim málum í framhaldinu. Rætt um mögulega viðburði á komandi starfsári sem og almennar reglur í kringum starfsemina. | | |
|
4. 2501009 - Málefni grunnskóla 2025 | |
Fræðslunefnd skoðar framkomin drög að skólareglum á milli funda og afgreiðir á næsta fundi. Fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við framkomna tillögu að skipulagi innan stundarskrár á komandi skólaári. | | |
|
5. 2501010 - Málefni leikskóla 2025 | |
Fræðslunefnd samþykkir framkomna tillögu að skóladagatali. | | |
|