Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 237

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
28.11.2019 og hófst hann kl. 10:05
Fundinn sátu: Skúli Hreinn Guðbjörnsson formaður,
Sigríður Huld Skúladóttir varaformaður,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir aðalmaður,
Kristján Sturluson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Kristján Sturluson, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1903025 - Fjárhagsáætlun 2020-2023
Gjaldskrár:
Hækka um 2,5%. Hlutfall fráveitu og vatnsgjald lækkar þannig að hækunn verði í samræmi við þetta.
Grunngjald vegna dýrahræja verður kr. 18.000 miðað við 20 kindur eða 5 stórgripi eða minna. Vinna við þessa gjaldskrá er enn í gangi
Breytingatillögur:
Heilbrigðismál hækka vegna aukins kostnaðar við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands.
Aðgangseyrir Byggðasafns tekinn út þar sem safnið verður ekki opið næsta sumar.
Kostnaður vegna byggðasamlags um slökkvilið færist úr A í B hluta.
Breytingar í framhaldi af ákvörðun um skuld Silfurtúns við aðalsjóð.
Hætt verður að senda álagningar- og greiðsluseðla á pappír.
Fjárfestingar í heild óbreytt upphæð en kostnaður lækkar við suma liði en hækkar við aðra.

Verður tekið til afgreiðslu á fundi byggðarráðs 6. desember.

Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari og Viðar Ólafsson verkstjóri sátu fundinn undir dagskrárlið 1.
2. 1911006 - Stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar
Dalabyggð þarf mögulega að lána Hvömmum hses. kr. 8.000.000 fyrir greiðslu 1. desember og gera kaupsamning ef skráning hjá RSK verður ekki komin í gegn.
Byggðarráð staðfestir heimild til að lána Hvömmum hses til skamms tíma.
Samþykkt samhljóða.
3. 1911022 - Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki VI
Dalabyggð fær 6 milljónir vegna íbúðabygginga sbr. viljayfirlýsingu sem var undirrituð 8. nóvember sl. Viðauka þarf til þess að hægt sé að yfirfæra þetta fé til Hvamma hses.
Samþykkt samhljóða að leggja viðauka fyrir sveitarstjórn.
R. Yfirlit viðauka 2019_Dalabyggð VI.pdf
4. 1902029 - Fjárhagsáætlun 2019 - frávik frá viðauka I
Umræða að lán til Dalaveitna verði frá aðalsjóði í stað utanaðkomandi fjármögnunar.
Samþykkt samhljóða að fjármögnun verði lán úr aðalsjóði í stað utanaðkomandi láns.
5. 1906005 - Jafnréttisáætlun og framkvæmdaáætlun
Úr fundargerð 183. fundar sveitarstjórnar 14.11.2019, dagskrárliður 4:
1906005 - Jafnréttisáætlun og framkvæmdaáætlun
Jafnréttisstofa gerir athugasemdir við nokkur atriði í jafnréttisáætlun Dalabyggðar.
Tillaga:
Sveitarstjórn felur byggðarráði að gera breytingar í samræmi við athugasemdir Jafnréttisstofu og staðfesta áætlunina fyrir hönd Dalabyggðar.
Samþykkt samhljóða.

Frestað til 6. desember.
6. 1911014 - Rekstur vatnsveitu - vatnsgjald
Erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu vegna vatnsgjalds.
Lagt fram.
Minnisblað til sveitarfélaga Vatnsgjald.pdf
Til allra sveitarfélaga.pdf
7. 1803025 - Árblik - viðhald
Erindi frá Kvenfélaginu Fjólu vegna Árbliks.
Þrif á stólum fari fram sem fyrst.
Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir kr. 1.000.000 í viðhald vegna Árbliks.
Tölvupóstur 20_11_2019.pdf
8. 1911019 - Samstarfssamningur 2020
Með tölupósti dags 22. nóvember óskar Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) eftir að endurnýja samstarfssamning við Dalabyggð sem rennur út í lok árs 2019.
Sveitarstjóra falið að ræða við UDN um samning.
Samþykkt samhljóða.
Tölvupóstur 22_11_2019.pdf
Samningur_UDN-Dalabyggd 2017-2019.pdf
9. 1902026 - Ósk um breytingu á skatthlutfalli fasteignagjalda
Formaður byggðarráðs og sveitarstjóri hittu forsvarsmann Fóðuriðjunnar Ólafsdal ehf. 12. nóvember sl.
Frestað.
10. 1901005 - Mál frá Alþingi til umsagnar - 2019
Frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, 319. mál.
Frumvarp til laga um lyfjalög (lausasölulyf), 266. mál.
Frumvarp til laga um almannatryggingar almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu), 320. mál.

Byggðarráð telur að breytingar sem koma fram í frumvarpi til laga um almannatryggingar almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu) séu mjög til bóta. Sveitarstjóra falið að senda inn umsögn um málið.
Samþykkt samhljóða.
Frumvarp til laga um lyfjalög (lausasölulyf) 266 mál.pdf
Frumvarp til laga um almannatryggingar almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu) 320 mál.pdf
Frumvarp til laga um Húsnæðis og mannvirkjastofnun.pdf
11. 1901024 - Trúnaðarbók byggðaráðs
Fært í trúnaðarbók vegna persónuverndarsjónarmiða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei