Til bakaPrenta
Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 73

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
15.01.2025 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Eyjólfur Ingvi Bjarnason formaður,
Ragnheiður Pálsdóttir aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Jóna Björg Guðmundsdóttir Verkefnastjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
Sigríður Jónsdóttir verkstjóri heimaþjónustu sat fundinn undir liðum 1 til 4.
1. 2501031 - Félagsþjónusta
Lögð fram tillaga að reglum um stoð - og stuðningsþjónustu í Dalabyggð.

Verkefnastjóri sagði frá vinnu nýstofnaðs samráðshóps stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi.

Félagsmálanefnd samþykkir framkomna tillögu að reglum um stoð- og stuðningsþjónustu í Dalabyggð og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
2. 2406000 - Forvarnamál
Farið yfir stöðu mála og forvarnastefna Dalabyggðar 2025 - 2027 framlögð til samþykktar.
Félagsmálanefnd samþykkir framkomna tillögu að forvarnastefnu í Dalabyggð 2025 - 2027 og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
3. 2411008 - Gott að eldast á Vesturlandi
Farið yfir stöðu verkefnisins og næstu skref.
Verkefnastjóri fór yfir stöðu mála og hvað er á döfinni á Vesturlandi.
4. 2501030 - Heimsendur matur
Rætt um þá möguleika sem kunna að vera til staðar á fyrirkomulagi þess að bjóða upp á heimsendar máltíðir fyrir eldri borgara og öryrkja í Dalabyggð.
Félagsmálanefnd felur starfsmönnum að leita leiða til að hægt sé að mæta brýnni þörf þar sem við á að svo komnu máli. Móta þarf reglur til lengra tíma m.a. m.t.t. þátttöku Dalabyggðar í verkefninu Gott að eldast.
5. 2501029 - Skammtímadvöl barna
Í nýstofnuðum samráðshópi stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi er í gangi umræða um að sveitarfélögin í landshlutanum komi að uppbyggingu skammtímadvalar.

Félagsmálanefnd fagnar því að til skoðunar sé að koma á fót skammtímadvöl á Vesturlandi.
6. 2501027 - Farsæld barna
Verkefnastjóri kynnir stöðu mála.
Verkefnastjóri fór yfir það skipulag sem verið er að koma á í Dalabyggð varðandi farsæld barna og er unnið að því að geta kynnt skipulagið og mönnun þess á yfirstandi skólaári.

Sjá hér slóð á heimasíðu Dalabyggðar til fróðleiks um lög þessu tengdu:
https://dalir.is/thjonusta-og-starfsemi/felagsthjonusta/farsaeld/
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:15 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei