| |
1. 2110026 - Deiliskipulag fyrir jörðina Skoravík | |
Skipulagsnefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að erindi um vinnslu deiliskipulags fyrir jörðina Skoravík á Fellsströnd verði samþykkt.
Jafnframt mælist nefndin til þess við sveitarstjórn að framlögð skipulagslýsing verði samþykkt til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða. | Skoravík_Lysing_20211012_.pdf | | |
|
2. 2110045 - Umsókn um stofnun lóðar úr landi Svínhóls L137973 | |
Nefndin gerir ekki athugsemdir við erindið og leggur til við sveitarstjórn að stofnun lóðar úr landi Svínhóls verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. | af1312-Svínhóll_Kvíamóar_2021.06.23.pdf | | |
|
3. 2110046 - Svínhólsland - Ósk um nafnabreytingu | |
Nefndin gerir ekki athugasemdir við nafnabreytinguna.
Samþykkt samhljóða. | Svínhóll. (Ari Gíslason o.fl) (merkt).pdf | | |
|
4. 2111007 - Umsókn um lögbýli á Tungu 2 í Hörðudal | |
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lögbýlis að Tungu 2.
Samþykkt samhljóða. | Hnitsettur lóðaruppdráttur 2014.pdf | | |
|
5. 2002053 - Endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að kynna framlagða vinnslutillögu að aðalskipulagi og umhverfismatsskýrslu samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ákvæðum laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Tillagan og umhverfismatsskýrslan verði birt á vef og í miðlum til kynningar og send til umsagnaraðila. Ábendinga- og umsagnafrestur verði 4 vikur frá birtingu. Að kynningar- og umsagnartíma loknum verður gengið frá aðalskipulagstillögu og umhverfismatsskýrslu til athugunar Skipulagsstofnunar og síðan auglýsingar með 6 vikna athugasemdafresti.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
6. 2012016 - Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 | |
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við sameiginlega svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032.
Samþykkt samhljóða. | Fylgibréf til Dalabyggd.pdf | SAMEIGINLEG SVÆÐISÁÆTLUN UM MEÐHÖNDLUN ÚRGANGS 2021-2032.pdf | | |
|
| |
|
8. 2111003 - Verkefni vegna innleiðingar hringrásarkerfis | |
Lagt fram til kynningar. | Verkefni vegna innleiðingar hringrásarkerfis.pdf | | |
|