| |
1. 2005008 - Fjárhagsáætlun 2021 - 2024 | |
Ingibjörg Jóhannsdóttir, bókari sveitarfélagsins, kom og útskýrði þann hluta fjárhagsáætlunar sem snýr að umhverfis- og skipulagsmálum Dalabyggðar. Athugasemd var gerð við þann hluta er snýr að kostnaði í tengslum við svæðisskipulagsvinnu en ráðgert er að svæðisskipulagsnefnd, sem Dalabyggð er aðili að, fundi á komandi misserum með tilheyrandi kostnaði. | | |
|
2. 2003023 - Áætlun um refaveiðar 2020-2022 | |
Nefndin gerir athugasemd við að greiðslur til veiðimanna fyrir veidd dýr hafi staðið í stað í tæplega tvo áratugi. Kostnaður veiðimanna hefur á sama tíma haldið í við verðlag og veiðar standa því ekki undir kostnaði. Nefndin beinir því til sveitarstjórnar og Umhverfisstofnunar að þetta þarfnist endurskoðunar.
Vegna friðunar á refastofninum norðan við Dalabyggð hefur ágangur refa stóraukist í sveitarfélaginu. Eðlilegt væri að auka kvóta veiddra dýra í samræmi við það.
Nefndin bendir á að endurgreiðsluhlutfall Umhverfisstofnunar er ekki í samræmi við núverandi stærð sveitarfélagsins og breyttar aðstæður.
Nefndin telur eðlilegt að Náttúrufræðistofnun Íslands standi straum af þeim kostnaði sem fellur til vegna þeirra sýna sem stofnunin kallar eftir.
Nefndin bendir á að vegna breyttra aðstæðna með minkasíur þarf að endurskoða verklag um minkaveiðar þar sem meira er farið að sjást af mink á svæðinu. | | Hörður og Vilhjálmur viku af fundi undir þessum lið og Viðar Ólafsson sat fundinn undir þessum lið.
| |
|
3. 2009014 - Ósk um umsögn v.breytingar aðalskipulags og nýs deiliskipulags í Reykhólahreppi | |
Nefndin gerir ekki athugasemdir við auglýsta tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018 og nýs deiliskipulags vegna vatnsaflsvirkjunar í Garpsdal. | | |
|
4. 2003042 - Hróðnýjarstaðir - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers | |
Til að forðast allan tvíverknað, kostnað og tafir í ferlinu leggur nefndin til við sveitarstjórn að farið verði eftir beiðni Skipulagsstofnunar um að bíða með auglýsingu skipulagstillögunar, þar til viðauki landsskipulagsstefnu liggur fyrir til kynningar. | | |
|
5. 2003041 - Sólheimar - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers | |
Til að forðast allan tvíverknað, kostnað og tafir í ferlinu leggur nefndin til við sveitarstjórn að farið verði eftir beiðni Skipulagsstofnunar um að bíða með auglýsingu skipulagstillögunar, þar til viðauki landsskipulagsstefnu liggur fyrir til kynningar. | | |
|
6. 2010005 - Ytra-Fell - óveruleg breyting á deiliskipulagi | |
Nefndin metur það svo að um sé að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi og er því ekki talin ástæða til meðferðar málsins skv. 1. mgr. 5.8.1. gr. skipulagsreglugerðar. Jafnframt eru allir hagsmunaaðilar (landeigendur) samþykkir þessari breytingu og er því ekki þörf á grenndarkynningu. Hins vegar liggja ekki fyrir öll gögn í málinu og óskar nefndin eftir ítarlegri gögnum sem lúta að óverulegri breytingu á deiliskipulagi og undirskrift/samþykki allra landeigenda. | | |
|
7. 2009017 - Endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við skipulags- og matslýsingu fyrir endurskoðun Borgarbyggðar. | | |
|
8. 2010004 - Fremri-Hrafnabjörg - umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahús | |
Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið og felur byggingarfulltrúa að afgreiða málið. | | Hörður vék af fundi undir þessum lið.
| |
|
9. 2009022 - Tilboð í sorptunnuskýli og festingar | |
Nefndin tekur vel í erindið og leggur til að sveitarstjórn kalli eftir tilboði frá sorphirðuaðila þegar hann hefur verið valinn. | | |
|
10. 2009030 - Deiliskipulag í landi Hróðnýjarstaða | |
Nefndin leggst ekki gegn því að hafin verði vinna að nýju deiliskipulagi í landi Hróðnýjarstaða en bendir á að nýtt deiliskipulag tekur ekki gildi fyrr en að breyting á aðalskipulagi hefur öðlast gildi. | | |
|
11. 2010003 - Umsókn um niðurrif útihúsa á Staðarhóli | |
Nefndin leggst ekki gegn framkvæmdunum en bendir á að förgun skal vera í samræmi við lög og reglugerðir. | | |
|
12. 2010002 - Innri-Fagridalur - umsókn um stofnun lóðar | |
Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið. | | |
|
13. 2009031 - Framlenging á stöðuleyfi | |
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að stöðuleyfi fyrir vindmælingamöstur í landi Hróðnýjarstaða verði framlengt um eitt ár, frá 25. október 2020 til 25. október 2021. | | |
|
| |
14. 2009018 - Hvalreki við Álftafjörð | Lagt fram til kynningar. | | |
|
15. 1904034 - Sorphreinsun - útboð 2020 - 2022 | |
Lagt fram til kynningar. | | |
|