| |
1. 2501009 - Málefni grunnskóla 2025 | |
Skólastjóri fór yfir stöðu mála í skólastarfinu. Varðandi reglur um móttöku fósturbarna þá samþykkir fræðslunefnd að fela verkefnastjóra fjölskyldumála og skólastjóra að vinna tillögu að uppfærðum reglum fyrir næsta fund fræðslunefndar m.t.t. umræðna á fundinum. | Reglur um skólavist fósturbarna í leik- og grunnskóla í Dalabyggð.pdf | | |
|
2. 2501010 - Málefni leikskóla 2025 | |
Skólastjóri kynnti hvernig verið er að koma upplýsingum um stöðu gæðaviðmiða skólans á framfæri á heimasíðu Auðarskóla. Einnig kynnti skólastjóri að bætt hefði verið í upplýsingagjöf í fréttabréfi til foreldra. | | |
|
Á fundinn mættu og sátu undir lið þrjú tónlistarkennararnir Ólafur Einar Rúnarsson og Sigurbjörg I. Kristínardóttir.
| 3. 2501012 - Málefni Tónlistarskóla 2025 | |
Fram kom að ekki er í gildi samræmd skólanámskrá tónlistarskóla í landinu og það verið svo í töluverðan tíma. Rætt um möguleika þess að bjóða upp á einhverskonar opið nám fyrir yngstu nemendur í tónlist þannig að þeir gætu prófað fleiri en eitt hljóðfæri. Skólastjóri og kennarar taka jákvætt þess konar útfærslu og munu koma því á framfæri. Rætt um hljóðfærakost skólans t.a.m. er flygill orðinn mjög lúinn. Fara þarf yfir þau mál sem og aðstöðu til að færa hljóðfærin. Einnig rætt um þann möguleika að bjóða upp á nám fyrir fullorðna. Í tónlistarskólanum núna eru í kringum 40 nemendur. Fræðslunefnd þakkar þeim Sigurbjörgu og Ólafi fyrir gott samtal. | | |
|
4. 2501027 - Farsæld barna í Dalabyggð | |
Verkefnastjóri fjölskyldumála kynnti yfirlit yfir þá tengiliði sem komnir eru varðandi farsæld barna í Dalabyggð og hvernig fyrirhugað er að halda á málum varðandi kynningu og fleira á næstunni. | | |
|
Á fundinn mætti og sat undir lið fimm Guðný Erna Bjarnadóttir lýðheilsufulltrúi.
| 5. 2412001 - Félagsmiðstöðin Gildran | |
Lýðheilsufulltrúi og skólastjóri fóru yfir hvernig fyrirhuguð er starfsemi félagsmiðstöðvar fyrir miðstig og elsta stig. Á áætlun er að hefja starfið á næstunni og verður frekari tímasetning og útfærsla kynnt fyrir nemendum og foreldrum. | | |
|
6. 2010009 - Akstur framhaldsskólanema úr Búðardal | |
Rætt um akstur framhaldsskólanemenda í MB. Fræðslunefnd samþykkir að kynna núverandi fyrirkomulag og kalla jafnframt eftir því hvort nemendur óska eftir akstri í MB á næsta skólaári. | | |
|