| |
1. 2301030 - Menntastefna Dalabyggðar 2024 - 2029 | |
Fræðslunefnd fagnar framkominni tillögu að verklagsreglum fyrir fræðslunefnd og samþykkir að vinna framvegis samkvæmt þeim ramma sem þar er lagður f.o.m. næsta skólaári.
Rætt var um hvernig staðið verði að innleiðingu Menntastefnu Dalabyggðar á næstu misserum. | | |
|
2. 2308003 - Auðarskóli málefni grunnskóla 2023-2024 | |
Skólastjóri fór yfir stöðu mála, fjölda nemenda og stöðu í starfsmannamálum sem og drög að starfsáætlun skólans fyrir komandi skólaár. Starfsáætlun verður kynnt frekar á næsta fundi fræðslunefndar. Einnig var farið yfir stöðu á vinnu við gerð handbókar skólaþjónustu og farsældar. Skólastjóri kynnti að nú er til umsagnar frumvarp til laga um inngildandi menntun sem er frumvarp til laga núna. Skólastjóri rakti þær breytingar sem orðið hafa á stoðþjónustu fræðslumála í Dalabyggð á síðustu 12 mánuðum. Skólastjóri og verkefnastjóri fjölskyldumála mættu f.h. Dalabyggðar á Farsældardag Vesturlands sem haldinn var á vegum SSV fyrir stuttu en þar kynntu þær breytingar sem orðið hafa á fyrrgreindum þáttum í þágu farsældar. Skólastjóri kynnti bókun skólaráðs varðandi hvatningu til nemenda um að æfa lestur yfir sumarið svo eitthvað sé nefnt og vísað til vefsvæða sem eru aðgengileg vegna þessa.
| | |
|
3. 2308004 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2023-2024 | |
Skólastjóri fór yfir stöðu mála, fjölda nemenda og stöðu í starfsmannamálum. Margir þættir sem bókað er um undir málefnum grunnskóla eiga einnig við varðandi starfsemi leikskóla. | | |
|
4. 2301027 - Skólaakstur 2024-2027 | |
| |
|
5. 2404022 - Tónlistarskóli 2024 | |
| |
|
6. 2403007 - Starfshópur um skipulag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs í Dalabyggð 2024 | |
| Skólastjóri og áheyrnarfulltrúi starfsmanna viku af fundi að loknum lið 6 á dagskrá.
| |
|
Jón Egill Jónsson íþrótta- og tómstundafulltrúi sat fundinn undir lið 7.
| 7. 2208010 - Tómstundir í Dalabyggð | |
Farið yfir stöðu skráninga í sumarstarfið sem verður á vegum Íþróttafélagsins Undra, forráðamenn eru hvattir til að skrá sín börn sem fyrst ef áhugi er á þátttöku.
Verið er að vinna í lagfæringum á ákveðnum þáttum á íþróttavellinum og fór íþrótta- og tómstundafulltrúi yfir stöðuna á því. Rætt um að fá sjálfboðaliða til þess að fara í átaksverkefni á íþróttavallarsvæðinu á allra næstu dögum. Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að ræða við UDN um samstarf varðandi framkvæmdina. | | |
|
8. 2404019 - Eldhugar | |
Útlit er fyrir að Þorgrímur komi í heimsókn til okkar í Dalabyggð á haustmánuðum. | | |
|
9. 2010009 - Akstur framhaldsskólanema úr Búðardal í MB | |
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála. | | |
|