Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 249

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
23.07.2020 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Skúli Hreinn Guðbjörnsson formaður,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir aðalmaður,
Einar Jón Geirsson varaformaður,
Kristján Sturluson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Kristján Sturluson, sveitarstjóri
Lagt er til að eftirtöldum málum verði bætt á dagskrá:
Mál 2007006 - Viðbragðsáætlanir hafna 2020, mál til kynningar, verði dagskrárliður 19.
Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2005003 - Breytingar á verslun Samkaupa í Búðardal
Úr fundargerð 247. fundar byggðarráðs 25.06.2020, dagskrárliður 5:
2005003 - Breytingar á verslun Samkaupa í Búðardal
Svo virðist sem hækkanir á vöruverði séu meiri en fram kom á fundi fulltrúa Samkaupa með byggðarráði 28. apríl sl.
Unnið er að verðsamanburði og þegar niðurstöður liggja fyrir er formanni byggðarráðs og sveitarstjóra falið að útbúa erindi sem sent verði til Samkaupa og mögulega einnig fjölmiðla.
Samþykkt samhljóða.

Erindi hefur verið sent Samkaupum.

Á fundi forsvarsmanna Samkaupa með byggðarráði Dalabyggðar þann 7. maí sl. kynntu þeir ákvörðun fyrirtækisins um að breyta versluninni í Búðardal úr Kjörbúð í Krambúð. Þar kom fram hjá forsvarsmönnum Samkaupa að gert væri ráð fyrir því að vöruverð myndi hækka um 7,7%. Byggðarráð lýsti á fundinum yfir áhyggjum yfir þessu. Á fundi sínum þann 14. maí mótmælti sveitarstjórn Dalabyggðar breytingunni á versluninni í Búðardal þar sem ljóst væri að hún myndi hafa í för með sér hækkað vöruverð. Með breytingunni væri verið að leggja aukna áherslu á að ná til ferðamanna sem kæmi hins vegar niður á íbúum sérstaklega hvað varðar vöruverð. Skoraði sveitarstjórn á Samkaup að tryggja að vöruverð hækkaði ekki. Verðstefnan sem Samkaup hefði fylgt með Kjörbúðinni hefði bæði leitt til þess að frekar væri verslað í heimabyggð og eins af fólki frá nágrannabyggðarlögum.
Nú hefur verðsamanburður sýnt að vörukarfa með 52 vöruliðum hefur hækkað um 25%. Í þessum verðsamanburði voru borin saman verð á kvittunum frá Kjörbúðinni í apríl og verðmerkingar á hillum í Krambúðinni 24. júní sl.
Það er himinn og haf á milli 25% hækkunar vöruverðs og 7,7% hækkunar, sem hefði þó verið meira en nóg. Sveitarfélagið Dalabyggð lýsir verulegum vonbrigðum yfir því sem hér hefur gerst og að verð virðist hafa hækkað svo hrikalega umfram það sem forsvarsmenn Samkaupa höfðu áætlað. Að geta verslað í heimabyggð er hluti af grunnþjónustu sem skiptir miklu máli í almennum lífskjörum íbúa í sveitarfélaginu og þetta kemur mest niður á þeim sem hafa ekki kost á að fara annað til að versla. Það er nauðsynlegur hluti í grunnþjónustu í hverju samfélagi að geta verslað í heimabyggð en það verður að vera gert með þeim hætti að fólki sé kleift að nýta sér þjónustuna. Dalabyggð ítrekar áskorun sína til Samkaupa að endurskoða verðlagningu í versluninni í Búðardal.
Í svari frá forstjóra Samkaupa í dag kemur fram að hann sé ekki sammála þeirri niðurstöðu sem verðsamanburðurinn sýnir. Einnig að hann muni leggja til að stjórn Samkaupa fjalli um málefni verslunarinnar í Búðardal á fundi sínum í lok ágúst.
2. 2005001 - Staða varðandi frístundasvæði í Sælingsdalstungu.
Úr fundargerð 246. fundar byggðarráðs 28.05.2020, dagskrárliður 11:
2005001 - Staða varðandi frístundasvæði í Sælingsdalstungu.
2016 var lóð úthlutað á orlofshúsasvæði í Sælingsdalstungu. Ekki hefur verið farið í framkvæmdir á svæðinu.
Byggðarráð óskar eftir að unnin verði kostnaðaráætlun um framkvæmdir vegna frístundasvæðisins í Sælingsdalstungu áður en tekin verður ákvörðun um framhaldið.
Samþykkt samhljóða.

Gróf kostnaðaráætlun er 5,5 til 6 millj.kr. vegna vatnsleiðslu, girðinga og lagfæringar á núverandi vegslóða. Ekki er svigrúm til þessara framkvæmda í ár. Málinu vísað til vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.
Samþykkt samhljóða.
Sælingsdalstunga 2020 allt.pdf
3. 2004016 - Endurskoðun á innkaupareglum.
Drög að endurskoðuðum reglum lögð fram. Lagt fyrir byggðarráð í umboði sveitarstjórnar í orlofi hennar.
Frestað til næsta fundar byggðarráðs.
Tillaga að innkaupareglum og -stefnu fyrir Dalabyggð - drög 22_07_2020.pdf
4. 2007003 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi vegna Vínlandsseturs, veitingastaðar í flokki II, kaffihús.
Embætti Sýslumannsins á Vesturlandi óskar eftir umsögn um umsókn Vínlandsseturs ehf kt.500320-1170, um rekstrarleyfi vegna veitingastaðar í flokki II, veitingahús, kaffihús, sem rekið verður sem Vínlandssetur, að Búðarbraut 1(F2117201), 370 Búðardalur.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfisins.
Samþykkt samhljóða.
umsagnarb.rek.V.II-Vínlandssetur,Búðarbraut 1,Búðardal.pdf
5. 2003034 - Breyting á gjalddögum fasteignagjalda
Lagt fyrir byggðarráð í umboði sveitarstjórnar í orlofi hennar.
Skv. samþykkt sveitarstjórnar var gefinn kostur á seinka þremur eindögum fasteignagjalda um allt að sjö mánuði.

Ekki verður veittur frestur varðandi fleiri eindaga. Málið verður tekið upp aftur ef erindi berast vegna þess.
Samþykkt samhljóða.
6. 2007004 - Fyrirspurn um lóð
Skipulagsfulltrúa hefur borist fyrirspurn um lóð fyrir sjálfsafgreiðslustöð.
Byggðarráð vísar málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
7. 1910017 - Erindi til heilbrigðisráðherra vegna Silfurtúns
Úr fundargerð 193. fundar sveitarstjórnar 22.06.2020, dagskrárliður 6:
1910017 - Samskipti við Heilbrigðisstofnun Vesturlands varðandi Silfurtún.
Úr fundargerð 187. fundar sveitarstjórnar 13.02.2020, dagskrárliður 16:
1910017 - Könnun á samstarfi Silfurtúns og Fellsenda
Úr fundargerð 29. fundar stjórnar Silfurtúns 04.02.2020, dagskrárliður 4:
1910017 - Könnun á samstarfi Silfurtúns og Fellsenda
Greinargerð ráðgjafa lögð fram.
Stjórnin leggur til við sveitarstjórn að leitað verði eftir því að Heilbrigðisstofnun Vesturlands taki við rekstri Silfurtúns.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tók: Ragnheiður
Samþykkt samhljóða.
Úr fundargerð 24. fundar stjórnar Silfurtúns 16.06.2020, dagskrárliður 3:
1910017 - Svar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands vegna rekstrar Silfurtúns
Í svari HVe kemur fram að stofnunin hafni beiðni Dalabyggðar um að taka við rekstri Silfurtúns. Stjórn Silfurtúns hvetur sveitarstjórn til að halda áfram með málið gagnvart heilbrigðisráðuneytinu.
Lögð fram bréf Dalabyggðar til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og svar stofnunarinnar.
Formanni stjórnar Silfurtúns og hjúkrunarframkvæmdastjóra falið í samráði við sveitarstjóra að taka saman greinargerð sem verði til að fylgja málinu eftir.
Samþykkt samhljóða.

Drög að bréfi lögð fram.

Lagt fyrir byggðarráð í umboði sveitarstjórnar í orlofi hennar.
Bréfið samþykkt og sveitarstjóra falið að koma því á framfæri við heilbrigðisráðherra.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðir til staðfestingar
8. 1905009 - Fundargerðir Eiríksstaðanefndar
Fundargerð frá 30.06.2020. Lögð fyrir byggðarráð í umboði sveitarstjórnar í orlofi hennar.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Eiríksstaðanefnd 30_06_2020.pdf
Fundargerðir til kynningar
9. 1911021 - Fundargerðir stjórnar Bakkahvamms hses
Fundargerð frá 14.07.2020. Lögð fyrir byggðarráð í umboði sveitarstjórnar í orlofi hennar.
Fundur stjórnar Bakkahvamms 14072020.pdf
10. 2003001 - Dalaveitur - fundargerðir stjórnar 2020
Fundargerð frá 16.07.2020. Lögð fyrir byggðarráð í umboði sveitarstjórnar í orlofi hennar.
Dalaveitur ehf 28.pdf
Mál til kynningar
11. 2005008 - Fjárhagsáætlun 2021 - 2024
Minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga lagt fram.
Forsendur fjárhagsáætlana 2021-2024.pdf
12. 2007001 - Boð um ráðgjöf
Tölvupóstur frá Magnúsi Gheringer lagður fram.
13. 2003041 - Sólheimar - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers
Skipulagsstofnun hefur tilkynnt að tafir verða á afgreiðslu stofnunarinnar á erindi sveitarfélagsins dags. 30. júní og 1. júlí 2020 þar sem óskað er athugunar á breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers að Hróðnýjarstöðum og í landi Sólheima samkvæmt (30./32. gr.) skipulagslaga nr. 123/2010.
Tilkynning um tafir á afgreiðslu skv stjórnsýslulögum - breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar.pdf
14. 2003042 - Hróðnýjarstaðir - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers
Skipulagsstofnun hefur tilkynnt að tafir verða á afgreiðslu stofnunarinnar á erindi sveitarfélagsins dags. 30. júní og 1. júlí 2020 þar sem óskað er athugunar á breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers að Hróðnýjarstöðum og í landi Sólheima samkvæmt (30./32. gr.) skipulagslaga nr. 123/2010.
Tilkynning um tafir á afgreiðslu skv stjórnsýslulögum - breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar.pdf
15. 2007005 - Stjórnsýslukæra vegna gjaldskrár fyrir hirðingi, móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð
Lagt fyrir byggðarráð í umboði sveitarstjórnar í orlofi hennar.
Sveitarstjóra falið að svara Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Samþykkt samhljóða.
Svar Dalabyggðar.pdf
Bréf kæranda til Dalabyggðar.pdf
Gjaldskrá.pdf
Kæra.pdf
16. 1911008 - Framkvæmdir við fráveitu - tímaáætlun verks
Nú eru hafnar framkvæmdir við fyrsta áfanga af þremur við fráveitu í Búðardal. Í þessum áfanga verður tengdar saman útrásir fráveitanna norðan og sunnan megin. Í öðrum áfanga verður lögð útrás og þriðji áfangi er hreinsistöð.
Það er fyrirtækið Stafnafell ehf. sem sér um fyrsta áfangann. Á meðan á framkvæmdum stendur verður töluvert rask, sérstaklega þegar fara þarf í gegnum planið neðan við Vínlandssetur. Verklok fyrsta áfanga eru áætluð 20. september.

Verkáætlun_fráveita 2020.pdf
17. 1807013 - Vínlandssetur
Frestap til næsta fundar.
18. 2002040 - Flutningur dýrahræja til förgunar - útboð
Úr fundargerð 244. fundar byggðarráðs 24.04.2020, dagskrárliður 5:
2002040 - Flutningur dýrahræja til förgunar - útboð
Úr fundargerð 241. fundar byggðarráðs 27.05.2020, dagskrárliður 12:
2002040 - Flutningur dýrahræja til förgunar - útboð
Samþykkt að hefja undrbúning útboði. Gögn verði lögð fyrir fund byggðarráðs í apríl.
Stefnt að því að útboð verði auglýst í byrjun júní.
Samþykkt samhljóða.

Stefnt er að útboði fyrir lok júlí.
19. 2007006 - Viðbragðsáætlanir hafna 2020
Lagt fyrir byggðarráð sem hafnarstjórn.
Viðbragðsáætlun - bréf.pdf
Viðbragðsáætlun - Búðardalshöfn.pdf
Viðbragðsáætlun - Skarðsströnd.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei