Jákvæðar undirtektir við uppbyggingu nýs atvinnuhúsnæðis í Búðardal

DalabyggðÁhugaverðar fréttir

Undirtektir við fyrirhugaða byggingu nýs atvinnuhúsnæðis í Búðardal hafa verið afar jákvæðar og greinilega áhugi meðal fyrirtækja og fjárfesta. Um er að ræða rúmlega 700 fermetra húsnæði sem ætlað er að efla atvinnulíf í Dalabyggð og skapa ný tækifæri til reksturs og fjárfestinga á svæðinu.

Fulltrúi Byggðastofnunar hefur þegar átt 12 fundi með áhugasömum aðilum síðustu daga. Sá áhugi birtist bæði í vilja til að koma að framkvæmdum sem og í fjárfestingu í einstökum bilum innan hússins.

Í húsinu verða 12 bil, hvert um sig 55 fermetrar, með möguleika á millilofti yfir hluta rýmisins. Þá verður einnig hægt að sameina aðliggjandi bil og stækka rými í allt að 110 eða 220 fermetra eftir þörfum. Nú þegar hafa aðilar lýst yfir áhuga á um helmingi bilanna, sem undirstrikar mikla þörf eftir slíku húsnæði á svæðinu.

Áformað er að hefja framkvæmdir strax í vor og er stefnt að því að húsið verði tilbúið í kringum áramót. Unnið er að því að ná hagstæðum samningum um verkið og liggur endanlegt verð á hverju bili því ekki fyrir.

Verkefnið er óhagnaðardrifið og er í samstarfi Dalabyggðar, Byggðastofnunar og Fjárfestingafélagsins Hvamms.

Áhugasamir aðilar sem vilja tryggja sér bil í þessu nýja og glæsilega atvinnuhúsnæði eru hvattir til að hafa samband sem fyrst við verkefnastjóra Byggðastofnunar, Rúnar Þór Guðbrandsson, í síma 861-4000 eða með tölvupósti á runar@dugandi.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei