18.07.2012Saga Breiðafjarðar Fyrirlestri dr. Sverris Jakobssonar um sögu Breiðafjarðar er vera átti laugardaginn 21. júlí að Nýp á Skarðsströnd er frestað. Ný dagsetning verður auglýst bráðlega.Skoða betur
17.07.2012Lausar stöður við Auðarskóla Lausar eru tvær stöður við Auðarskóla í leikskóla og grunnskóla. Starfsmaður leikskóla Laus er 100 % staða leikskólakennara/leiðbeinanda í leikskóla Auðarskóla. Starfsmaðurinn starfar með börnum í leik og starfi undir stjórn deildarstjóra og framfylgir námskrá leikskólans. Viðkomandi þarf að hafa góða samstarfshæfni, vera sveigjanlegur í starfi og með jákvæð lífsviðhorf. Ef umsækjandi er ekki með uppeldismenntun er æskilegt að hannSkoða betur
14.07.2012Umsækjendur um Dalaprestakall Fjórir umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Dalaprestakalli. Frestur til að sækja um rann út þann 3. júlí síðastliðinn. Embættið veitist frá 1. ágúst 2012. Umsækjendur eru Cand. theol. Anna Eiríksdóttir, Cand. theol. Jóhanna Magnúsdóttir, Cand. theol. Salvar Geir Guðgeirsson og séra Torfi K. Stefánsson Hjaltalín. Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni niðurstöðu valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úrSkoða betur
14.07.2012Tannlæknaþjónusta í Búðardal Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson tannlæknir hefur tekið við rekstri tannlæknastofunnar í Búðardal. Vilhjálmur mun koma til starfa 26. júlí næstkomandi, en hann mun einnig sinna tannlæknaþjónustu á Hólmavík. Vilhjálmur er með stofu í Kópavogi. Tímapantanir í Búðardal verða áfram í síma 434 1445 og 695 7742.Skoða betur
11.07.2012Leikhópurinn Lotta á Ólafsdalshátíð! Leikhópurinn Lotta mun sýna nýtt leikrit um Stígvélaða köttinn á Ólafsdalshátíð, sunnudaginn 12. ágúst 2012 Þetta er sjötta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu. Síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Leikgerðina um Stígvélaða köttinn gerði Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er annað leikritið sem húnSkoða betur
08.07.2012Söfnun á rúlluplasti Áætlað er að safna rúlluplasti hjá bændum 9.-10. júlí, mánudag og þriðjudag. Plastið skal haft á aðgengilegum stað fyrir sorpverktaka. Baggabönd og net skal setja sér í glæra plastpoka. Óheimilt er að setja rúlluplast í sorpgáma á grenndarstöðvum sveitarfélagsins. Söfnunin er lögbýliseigendum að kostnaðarlausu, en sækja þarf um það til sveitarfélagsins fyrir 20. janúar 2012. Hægt er að sækja umSkoða betur
04.07.2012Bæjarhátíð í Búðardal Dagskrá bæjarhátíðarinnar er nú tilbúin. Skipulögð dagskrá er frá kl. 15 föstudaginn til kl. 3 á sunnudagsmorgunn. Föstudagur 6. júlí Kl. 15. Listasmiðja í Auðarskóla fyrir krakka. Kl. 17. Blindrabolti á sparkvellinum. Kl. 19 – 21. Kjötsúpa í boði á heimilum í Búðardal. Kl. 21:30. Kvöldvaka við Leifsbúð. Laugardagurinn 7. júlí Kl. 12. Vestfjarðavíkingurinn. Uxaganga við Leifsbúð. Kl. 13. FélagSkoða betur
29.06.2012Kjörfundur Kjörfundur í Dalabyggð vegna kosninga til embættis forseta Íslands verður haldinn laugardaginn 30. júní 2012 kl. 10-20 í Héraðsbókasafni Dalasýslu, Miðbraut 11, Búðardal. Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað. Nánari upplýsingar um kosningarnar er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins. Sérstök athygli er vakin á því að kjörfundi lýkur kl. 20. Kjörstjórn DalabyggðarSkoða betur
28.06.2012Bæjarhátíð – markaður FSD Félag sauðfjárbænda í Dölum mun reisa tjald sitt við Auðarskóla á meðan Bæjarhátíð í Búðardal stendur yfir, til afnota fyrir þá sem vilja selja eða sýna heimaunna vöru. Áhugasamir um pláss hafi samband við Hönnu Siggu í síma 847 9598Skoða betur
26.06.2012Sveitarstjórn Dalabyggðar 89. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 28. júní 2012 og hefst kl. 16. Dagskrá Almenn mál 1. Forsetakosningar 2012 – kjörskrá 26.6.2012Sveinn Pálsson, sveitarstjóri.Skoða betur
25.06.2012Dalir og hólar Sýningin Dalir og hólar opnar laugardaginn 30. júní. Sýningarstaðir í ár verða á Reykhólum, við Vogaland í Króksfjarðarnesi, á Staðarhóli í Saurbæ og í Ólafsdal í Gilsfirði. Myndlistamennirnir vinna út frá náttúru og menningu héraðanna sem mynda umgjörð um sýninguna. Sýningarskrá er jafnframt leiðsögukort um svæðið. Viðfangsefni sýningarinnar að þessu sinni er hugtakið FERÐ. Að þessu sinni hefur verkefnið boðiðSkoða betur
22.06.2012Riishús Borðeyri Nokkrar konur í Hrútafirði hafa tekið sig saman og eru að setja upp nytja- og handverksmarkað ásamt kaffisölu í Riishúsinu á Borðeyri. Opnað verður laugardaginn 23. júní og verður opið daglega kl. 14-17 í sumar fram til 10. ágúst. Þetta átak er fjársöfnun fyrir áframhaldandi endurbyggingu Riishússins. Allur ágóði af nytjamarkaðinum gengur beint til hússins og hluti af kaffisölunni. HúsiðSkoða betur