Fréttir.

01.04.2017

Útsala á bókum

Á Héraðsbókasafni Dalasýslu hefur safnast upp fjöldi bóka sem ekki þykir ástæða til að geyma lengur á safninu og í yfirfullum geymslum sveitarfélagsins. Því verður haldinn bókamarkaður í anddyri Stjórnssýsluhússins í dag kl. 10-18. Meðal bóka sem finna má á markaðinum eru: Jón Guðnason; Dalamenn I-IV og Strandamenn I-X. Guðrún frá Lundi; Dalalíf I-LVI, Utan frá sjó I-IV, Upp til
Skoða betur
31.03.2017

Íbúagátt

Aðgangur að íbúagátt Dalabyggðar hefur verið lokuð undanfarna daga, en nú á loks að vera hægt að nálgast upplýsingar þaðan.
Skoða betur
29.03.2017

Aðalfundur Fornleifafélags Barðstrendinga og Dalamanna

Aðalfundur Fornleifafélags Barðstrendinga og Dalamanna verður haldinn í báta og hlunnindasafninu á Reykhólum, fimmtudaginn 6. apríl kl. 17. Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Skýrsla stjórnar 3. Afgreiðsla reikninga 4. Kosning í stjórn 5. Kynning á lokaskýrslu fornleifaskráningar í Flatey á Breiðafirði 6. Önnur mál
Skoða betur
20.03.2017

Súrkál og annað sýrt grænmeti

Garðyrkjufélag Dalabyggðar stendur fyrir námskeiði í að sýra grænmeti sunnudaginn 26. mars kl. 11:00-14:30 í Dalabúð. Mjólkursýring er ævagömul náttúruleg leið til að geyma grænmeti. Mjólkursýrubakteríur eru náttúrulega til staðar á grænmeti og aðferðin gengur út á að skapa réttar aðstæður til að þær nái yfirhöndinni og koma af stað gerjun. Flestir kannast við súrkál en hægt er að sýra
Skoða betur
17.03.2017

Sveitarstjórn Dalabyggðar 146. fundur

146. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 21. mars 2017 og hefst kl. 19. Dagskrá Almenn mál 1. Ársreikningur 2016 2. Sala eigna – Laugar í Sælingsdal 3. UDN – Samstarfssamningur 2017-2019 Almenn mál – umsagnir og vísanir 4. Skráning menningarminja – skil á gögnum 5. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi – Aðalfundur 2017 6. Sorpurðun Vesturlands – Aðalfundur
Skoða betur
17.03.2017

Skyndihjálparnámskeið

Námskeið í skyndihjálp verður haldið í Auðarskóla 22. mars frá kl. 17:00 til 21:00. Skráning er í síma 864 6754 eða á netfangið bryndis@redcross.is. Námskeiðið kostar 5.000 kr. Stjórn Rauða krossins í Búðardal
Skoða betur
07.03.2017

Árgjald héraðsbókasafns

Árgjald Héraðsbókasafns fyrir árið 2016 verður óbreytt frá fyrra ári, það er 1.000 kr. Hægt er að greiða árgjaldið inn á reikning 0312-26-001818, kt. 510694-2019, skrá þarf í skýringar ef greitt er fyrir annan. Einnig er hægt að greiða árgjaldið á skrifstofu Dalabyggðar. Eindagi árgjalds er 1. apríl og eftir það verður greiðsluseðlar sendir út að viðbættum kostnaði. Héraðsbókasafn Dalasýslu
Skoða betur
07.03.2017

Hundahald í Búðardal

Hundeigendum í Búðardal ber að skrá hunda sína og greiða 7.000 kr í skráningargjald. Eftir það er 5.000 kr árgjald með gjalddaga 1. mars og eindaga 1. apríl. Hundahald í Búðardal sætir nokkrum takmörkunum samanber samþykkt um hundahald í Dalabyggð nr. 26/2003 og gjaldskrá fyrir hundahald í Dalabyggð frá 16. desember 2014. Eigendum hunda í Búðardal ber skylda til að
Skoða betur
06.03.2017

Bændur og búalið á Þórólfsstöðum

Laugardaginn 11. mars kl. 15 mun safnvörður segja frá bændum og búaliði síðustu 250 árin á Þórólfsstöðum í Miðdölum. Þar koma við sögu hagyrðingar, smíðar, fósturbörn, morðrannsókn, gullsmíði, skáld, myntsláttur, réttarfar, fólksflutningar, nafnagiftir, ættfræði og fleira. Aðgangseyrir verður sem fyrr 500 kr fyrir fullorðna og frítt fyrir börn yngri en 18 ára. Kaffi á könnunni. Byggðasafn Dalamanna – fb
Skoða betur
02.03.2017

Félagsvist í Árbliki

Kvenfélagið Fjóla heldur sitt þriðja og síðasta spilakvöld föstudaginn 3. mars kl. 20 í Árbliki. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Frítt fyrir 14 ára og yngri. Kaffiveitingar eru að lokinni spilamennsku.
Skoða betur
27.02.2017

Starfsmaður áhaldahúss – flokksstjóri vinnuskóla

Dalabyggð óskar eftir sumarstarfsmanni 1. maí – 30. september 2017. Starfið felst annars vegar í minniháttar viðhalds- og umhverfisverkefnum og hins vegar flokksstjórn Vinnuskóla Dalabyggðar. Æskilegt er að umsækjandi sé 20 ára eða eldri, hafi reynslu af því að vinna með börnum og hafi bíl til umráða. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Dalabyggðar og á skrifstofu sveitarfélagsins. Laun eru skv. kjarasamningum
Skoða betur
23.02.2017

Allir lesa úrslit

Úrslit í Allir lesa 2017 eru nú ljós og varð Dalabyggð í þriðja sæti á eftir Strandabyggð og Fjallabyggð. Dalabyggð hefur því hækkað sig um eitt sæti frá því í fyrra. Alls tóku 37 Dalamenn þátt í átakinu. En alls lásu þátttakendur 43.567 klukkustundir eða sem samsvarar um fimm árum. Öflugasti lestrarhestur landsins reyndist vera Ásdís Jónsdóttir frá Hólmavík en
Skoða betur
Fréttir.