12.05.2017Krabbameinsfélag Breiðfirðinga – íbúðir Að Rauðarárstíg 33 í Reykjavík eru íbúðir sem ætlaðar eru til afnota fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra af landsbyggðinni meðan á meðferð eða rannsókn stendur. Krabbameinsfélag Íslands á þar nokkrar íbúðir með öðrum félagasamtökum, og hafa aðildarfélög K.Í. aðgang að þeim með einhverjum fyrirvara. Landsspítalinn sér um rekstur íbúðanna. Upplýsingar og úthlutun er á geisladeild spítalans í síma 543 6800Skoða betur
12.05.2017Sveitarstjórn Dalabyggðar – 148. fundur 148. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 16. maí 2017 og hefst kl. 18:00. Dagskrá Almenn mál 1. Embætti skipulags- og byggingarfulltrúa 2. Veiðifélag Laxdæla 3. Íþróttamannvirki – skýrsla undirbúningshóps 4. Styrkumsókn v/viðhalds á Sauðafellskirkjugarði 5. Úthlutun stofnframlaga 2017 6. Skólaakstur 2017-2019 7. Reglur um opnunartíma veitinga- og skemmtistaða Almenn mál – umsagnir og vísanir 8. Matslýsing vegnaSkoða betur
08.05.2017Ert þú við góða heilsu? Hjartaheill og SÍBS bjóða ókeypis heilsufarsmælingu 9. til 12. maí á heilsugæslum á Vestfjörðum. Mældur er blóðþrýstingur, blóðsykur, blóðfita, súrefnismettun og styrkur. Þátttakendum býðst að taka þátt í lýðheilsukönnun. Verkefnið er unnið í samstarfi við sveitarfélög á Vestfjörðum, Heilbrigðisstofnanir Vesturlands og Vestfjarða.Skoða betur
27.04.2017Fyrsta maí samkoma Fyrsta maí samkoma SDS og Verkalýðsfélags Vesturlands verður í Dalabúð kl. 14:30. Kynnir verður Kristín G. Ólafsdóttir, stjórnarmaður í SDS. Ræðumaður verður Eiríkur Þór Theódórsson varaformaður ASÍUng og stjórnarmaður í Stéttarfélagi Vesturlands. Um skemmtiatriðið sér Egill Ólafsson leikari og söngvari. Kaffiveitingar verða að hætti Katrínar Lilju. Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta og sýna með því samstöðu á degiSkoða betur
24.04.2017Auðarskóli – kennarastöður Auðarskóli óskar eftir að ráða í tvær stöður kennara fyrir skólaárið 2017-2018. Um er að ræða 77% stöðu á unglingastigi og 100% stöðu á miðstigi. Kennsla á unglingastigi er í smíðum, ensku og dönsku. Umsjónarkennsla á miðstigi er í stærðfræði, upplýsingatækni og náttúrufræði. Mikilvægt er að umsækjendur búi að færni í samskiptum, frumkvæði í starfi, sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum ogSkoða betur
24.04.2017Auðarskóli -deildarstjóri á leikskóla afleysing Auðarskóli óskar eftir deildarstjóra á leikskóla til afleysinga í ár frá og með 31. júlí. Umsóknarfrestur er til 10. maí 2017. Helstu verkefni eru að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra á leikskóla. Hæfniskröfur eru · leikskólakennaramenntun · færni í samskiptum · frumkvæði í starfi · sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð · stundvísi · góð íslenskukunnátta Upplýsingar umSkoða betur
24.04.2017Reglur um félagslega heimaþjónustu í Dalabyggð Nýjar reglur um félagslega heimaþjónustu í Dalabyggð hafa verið samþykktar í félagsmálanefnd og sveitarstjórn. Reglur þessar eru settar samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 og öðlast þegar gildi. Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að efla viðkomandi til sjálfsbjargar og gera honum kleift að búa sem lengstSkoða betur
20.04.2017Rúlluplast Rúlluplasti verður safnað hjá bændum 24.-26. apríl. Næstu safnanir verða síðan 10.-14. júlí og 6.-9. nóvember. Plastið skal haft á aðgengilegum stað fyrir sorpverktaka. Frágangur á plastinu hjá bændum getur verið í stórsekk (t.d. undan áburði) eða pressað og bundið saman þannig að gott sé að koma því á bíl (litla bagga) eða í þar til gerðum gámum eða áSkoða betur
19.04.2017Skátar fagna sumri Á sumardaginn fyrsta mun Skátafélagið Stígandi taka á móti gestum í aðstöðu sinni í Dalabúð kl. 13:30 – 16:00. Úti verður kveikt bál og ýmislegt fróðlegt og skemmtilegt í gangi fyrir gesti og skáta að prufa. Inni verður hægt að hnýta hnúta, þæfa ull, fara í leiki, syngja skátasöngva, læra að súrra og sitthvað fleira. Í matsalnum verður vöffluhlaðborð fráSkoða betur
19.04.2017Vinnuskóli Dalabyggðar Vinnuskóli Dalabyggðar verður starfræktur frá 6. júní til 31. júlí 2017 og er fyrir unglinga fædda árin 2001 – 2004. Daglegur vinnutími verður kl. 8-12 og 13-15 fimm daga vikunnar fyrir elstu börnin, en fjóra daga fyrir hin yngri. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðunni og einnig á skrifstofu Dalabyggðar. Sérstakar vinnureglur og viðmið um verkefni og verkfæri gilda um Vinnuskóla DalabyggðarSkoða betur
18.04.2017Vinnuskóli – félagsleg liðveisla Tvö störf við félagslega liðveislu við Vinnuskóla Dalabyggðar eru laus til umsóknar. Um sumarstörf er að ræða. Starfsmenn sem sinna félagslegri liðveislu starfa með og undir stjórn verkstjóra vinnuskólans og fylgja sínum skjólstæðingi. Starfstími vinnuskólans er 6. júní – 31. júlí og daglegur vinnutími kl. 8:00 – 16:00. Hugsanlegt er að ráða starfsmenn einnig í ágústmánuði enda verði þá unniðSkoða betur