Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Lífshlaupið 2020”
28.01.2020

Lífshlaupið 2020

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Laust starf: Hjúkrunarframkvæmdarstjóri Silfurtúni”
27.01.2020

Laust starf: Hjúkrunarframkvæmdarstjóri Silfurtúni

Dalabyggð óskar að ráða drífandi einstakling í starf hjúkrunarframkvæmdastjóra Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns í Búðardal.   Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi með faglega sýn. Á Silfurtúni eru 10 hjúkrunarrými og 2 dvalarrými. Þar starfa um 15 starfsmenn. Um 100% starfshlutfall er að ræða.   Helstu viðfangsefni og ábyrgð • Fagleg ábyrgð og forysta um hjúkrun og þjónustu við
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Hornabú”
24.01.2020

Hornabú

Á þorranum verður örsýning úr gullakistu Byggðasafns Dalamanna á Héraðsbókasafni Dalasýslu. Bókasafnið er opið á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12:30-17:30.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn Dalabyggðar 185. fundur”
14.01.2020

Sveitarstjórn Dalabyggðar 185. fundur

185. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 16. janúar 2020 og hefst kl. 16.   Dagskrá Almenn mál 1. Þorrablót Ólafs Pá – tækifærisleyfi 2. Þorrablót Stjörnunar – tækifærisleyfi 3. Þorrablót Suðurdala – tækifærisleyfi 4. Umsóknir um framkvæmdaleyfi til skógræktar á lögbýlum 5. Minningargarðar í Dalabyggð 6. Stefna Dalabyggðar í loftslagsmálum 7. Ólafsdalur – breyting á deiliskipulagi
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára barna”
08.01.2020

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára barna

Börn 15-17 ára eiga ekki rétt á húsnæðisbótum. Foreldrar/forsjáraðilar sem greiða húsaleigu vegna 15–17 ára barna sinna á heimavist, á námsgörðum eða í leiguherbergi hjá óskyldum vegna náms hér á landi fjarri lögheimili eiga rétt á húsnæðisstuðningi sé sambærilegt nám ekki í boði í sveitarfélaginu.   Stuðningurinn er óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og getur numið allt að
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Björgunarsveitarfólk er Vestlendingar ársins 2019”
08.01.2020

Björgunarsveitarfólk er Vestlendingar ársins 2019

Vestlendingar ársins 2019 eru björgunarsveitarfólk á Vesturlandi.   Skessuhorn – fréttaveita Vesturland, stóð nú í 21. skipti fyrir vali á Vestlendingi ársins. Leitað var tilnefninga íbúa og var niðurstaðan afgerarandi. Magnús Magnússon ritstjóri Skessuhorns afhenti fulltrúum allra níu björgunarsveitanna á Vesturlandi blóm og viðurkenningarskjal við athöfn í Landnámssetri Íslands síðastliðinn föstudag. Því fylgdu meðfylgjandi orð: „Björgunarsveitarfólk sýndi á liðnu ári
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Álagningar- og greiðsluseðlar”
06.01.2020

Álagningar- og greiðsluseðlar

Dalabyggð hættir að senda út álagningar- og greiðsluseðla á pappírsformi frá 1. janúar 2020.  Hægt verður að fá þá senda í tölvupósti.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Drög að reglum um afnot af bæjarlandi Búðardals vegna skilta”
06.01.2020

Drög að reglum um afnot af bæjarlandi Búðardals vegna skilta

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 12. desember að leggja fram til kynningar drög að reglum um afnot af bæjarlandi Búðardals vegna skilta. Með því gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma með ábendingar eða gera athugasemdir við drögin.   Athugasemdum eða ábendingum skal skilað skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa, í síðasta lagi 28. janúar 2020, Miðbraut 11,
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Gleðilegt nýtt ár!”
01.01.2020

Gleðilegt nýtt ár!

...
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Áramótabrennur og flugeldasýning”
27.12.2019

Áramótabrennur og flugeldasýning

Árleg brenna og flugeldasýning í Búðardal verður á sjávarkambinum neðan við Búðarbraut og skotsvæði á gömlu bryggjunni. Kveikt verður í brennunni kl. 21 og sýningunni skotið upp nokkru síðar.     Varðeldur verður í landi Bjarnastaða í Staðarhólsdal, Saurbæ. Kveikt verður í um miðnætti.   Þurfi að koma til breytinga á brennustæðum og tímasetningum verður það auglýst á vef Dalabyggðar, www.dalir.is.
Skoða betur
27.12.2019

Félagsvist í Tjarnarlundi

Að venju verður stokkað upp í jóla-félagsvist í Tjarnarlundi laugardaginn 28. desember kl 20. Verð er 1.000 kr og veitingar innifaldar.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Síðustu opnunardagar Byggðasafnsins”
27.12.2019

Síðustu opnunardagar Byggðasafnsins

Síðustu opnunardagar Byggðasafns Dalamanna í kjallaranum á Laugum verða föstudaginn 27. desember og sunnudaginn 29. desember kl. 13-17. Frítt verður inn á safnið, húslestur og heitt á könnunni. Þurfi að koma til breytinga á opnunartímum vegna veðurs verður það auglýst á heimasíðu Dalabyggðar. Á nýju ári verður síðan hafist handa við að pakka safnkostinum niður. Skipulögð söfnun muna í Dölum fyrir væntanlegt Byggðasafn Dalamanna
Skoða betur
Fréttir.