Frístundastyrkir Dalabyggðar fyrir börn og ungmenni

DalabyggðFréttir

Til að fá frístundastyrk fyrir börn á aldrinu, 3 til 18 ára greiddan þarf að skila umsókn ásamt greiðslukvittunum til skrifstofu Dalabyggðar eigi síðar en 15. maí. Umsóknareyðublað fyrir frístundastyrk Reglur um frístundastyrk Dalabyggðar

Skrifstofa sýslumanns í Búðardal lokuð vegna sumarleyfis

DalabyggðFréttir

Skrifstofa sýslumannsins á Vesturlandi í Búðardal verður lokuð frá 5. maí til og með 5. júní nk. vegnar sumarleyfis. Næsti opnunardagur skrifstofu sýslumannsins er því þriðjudagurinn 6. júní. Við bendum á að hægt er að nálgast upplýsingar og þjónustu á www.syslumenn.is, með því að senda póst á vesturland@syslumenn.is eða í gegnum síma: 458-2300.

Óskað eftir ársreikningum veiðifélaga í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Á 233. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar þann 13. apríl sl. var eftirfarandi tillaga samþykkt, undir dagskrárlið 11: Í ljósi m.a. framkominnar fyrirspurnar Bæjarins Besta samþykkir sveitarstjórn Dalabyggðar að kalla eftir nýjasta ársreikningi frá öllum veiðifélögum í Dalabyggð samkvæmt skráningu Fiskistofu. Umræddum gögnum verður svo komið til Húsnæðis- og Mannvirkjastofnunar sem tekur afstöðu til og eftir atvikum endurmetur fasteignamat vegna hlunninda þeirra …

Vantar þig athafnahúsnæði?

DalabyggðFréttir

Í Dalabyggð er fyrirhugað að byggja húsnæði í nýju iðnaðarhverfi nyrst í Búðardal. Við leitum áhugasamra fyrirtækja og einstaklinga sem þurfa gott og hagkvæmt iðnaðarhúsnæði og vilja taka þátt í uppbyggingu hverfisins. Um er að ræða iðnaðarbil af stærðunum 50 – 100 – 150 eða 200 fermetrar, 6 metra vegghæð á húsinu og ætlunin að hafa stóra hurð og gönguhurð …

2.000.000 kr. í styrki frá Stéttarfélagi Vesturlands

DalabyggðFréttir

Á aðalfundi Stéttarfélags Vesturlands sem haldinn var 26. apríl sl. var samþykkt að veita tvo styrki í verkefni í Dalabyggð. Annar að upphæð 300.000 kr. – til Silfurtúns sem fer í kaup á stólavog, þ.e. vigt með mjúku sæti, uppfellanlegum örmum og fótahvílum sem auðveldar mjög starfsemi á heimilinu. Hinn að upphæð 1.700.000 kr.- til Ungmennafélagsins Ólafs Pá til kaupa …

Vinnuskóli Dalabyggðar 2023

DalabyggðFréttir

Vinnuskóli Dalabyggðar verður starfræktur frá 13. júní  og til loka júlí, fyrir unglinga fædda 2006 til 2010. Umsækjendur eru beðnir um að taka það fram á umsókninni ef sótt hefur verið um sumarstörf á fleiri stöðum. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí nk. Athugið að ekki er hægt að tryggja að umsóknir sem berast eftir þann tíma verði samþykktar. …

Undrasumarið 2023

DalabyggðFréttir

Hér að neðan er skráningaskjal fyrir bæði leikjanámskeið og íþróttaæfingar í sumar! Leikjanámskeið á vegum Undra verða haldin í fjórar vikur í júní, 5. – 30. júní frá 9-15 í Búðardal. Á þessum tíma verða fótboltaæfingar og íþróttagrunnur á mánudögum og miðvikudögum frá 13-15 í dalnum. Innifalið í leikjanámskeiðinu er hádegismatur í Dalabúð. Einnig verður boðið upp á frístundaakstur úr …

Strandabyggð auglýsir eftir verktaka: sláttur og umhirðu gróðursvæða í landi sveitarfélagsins

DalabyggðFréttir

Um er að ræða slátt og umhirðu á gróðursvæðum í eigu sveitarfélagsins, auk sérverkefna sem upp kunna að koma á hverjum tíma.  Umrædd svæði eru skilgreind af sveitarfélaginu og allar frekari upplýsingar og yfirlitsdrættir eru fyrirliggjandi á skrifstofu Áhaldahúss Strandabyggðar. Ræktuð svæði þarf að slá með vélum og óræktuð svæði með bensin-orfi.  Verktaki skal raka saman allt gras eftir slátt …

Frístundastyrkir Dalabyggðar fyrir börn og ungmenni

DalabyggðFréttir

Til að fá frístundastyrk fyrir börn á aldrinu, 3 til 18 ára greiddan þarf að skila umsókn ásamt greiðslukvittunum til skrifstofu Dalabyggðar eigi síðar en 15. maí. Umsóknareyðublað fyrir frístundastyrk Reglur um frístundastyrk Dalabyggðar