162. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 14. júní 2018 og hefst kl. 16:00. Dagskrá Almenn mál 1. Sveitarstjórnarkosningar 2018. Skýrsla kjörstjórnar lögð fram. 2. Kjör oddvita og varaoddvita 3. Kosning aðal- og varamanna í byggðarráð 4. Kosning í nefndir skv. A-hluta 48 gr. samþykkta Dalabyggðar. 5. Kosning í stjórnir og samstarfsnefndir skv. B-hluta 48. gr. samþykkta Dalabyggðar. 6. Ráðning sveitarstjóra. 7. …
Deiliskipulag fyrir Gildurbrekkur
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 16. apríl 2018 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í landi Hlíðar í Hörðudal í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið nær yfir frístundarbyggð á jörðinni Hlíð í Dalabyggð og er skipulagssvæðið staðsett fyrir neðan þjóðveg nr. 581 og hefur fengið nafnið Gildurbrekkur í tillögunni. Gert er ráð fyrir frístundarhúsum, þjónustuhúsi, hesthúsi, vélaskemmu …
Undirskriftalisti marklaus vegna formgalla
maí sl. afhenti Eyjólfur Ingvi Bjarnason Jóhannesi Hauki Haukssyni oddvita undirskriftir 213 íbúa Dalabyggðar þar sem skrifað er undir eftirfarandi: „Í samræmi við 64. gr. samþykkta um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar óskum við undirrituð eftir því að almenn atkvæðagreiðsla fari fram um mál nr. 1609021 – sala eigna – Laugar og Sælingsdalstunga sbr. tillögu Arnarlóns ehf. frá 13. maí sl. um lausn á …
Sauðafellshlaupið 2018
Föstudagskvöldið 8. júní stendur Rjómabúið á Erpsstöðum fyrir fimmta Sauðafellshlaupinu. Hlaupið hefst og endar við brúsapallinn á Erpsstöðum. Hlaupið er eftir þjóðvegi 60 að Fellsenda og upp veg 585, á Fellsendabrekkunni er stefnan tekin uppá Sauðafellið, það hlaupið þvert og niður að bænum Sauðafelli, og komið að þjóðvegi 60 á ný og þá er hringnum lokað er komið er að …
Liðveitandi
Félagsþjónustan í Dalabyggð auglýsir eftir einstakling til að starfa sem liðveitandi. Um er að ræða hlutastarf (um 12 tíma á mánuði) og er því tilvalið sem aukastarf með námi eða öðru starfi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi. Það eru til börn og unglingar sem gætu þegið stuðning þinn! Nánari upplýsingar veita Inga Vildís Bjarnadóttir félagsmálastjóri og Thelma Eyfjörð félagsráðgjafi í síma …
Ljósmyndasamkeppni
Ljósmyndasamkeppni verður á hátíðinni Heim í Búðardal. Bestu myndirnar verða sýndar á bæjarhátíðinni og vonandi eitthvað fram eftir sumri. Samhliða verða allar myndirnar sýndar á vefnum. Myndum skal skila á stafrænu formi í prentupplausn á netfangið ferdamal@dalir.is. Myndirnar eiga að vera nýlegar, viðmiðið er að þær séu ekki eldri en 5 ára. Keppt verður í þremur flokkum landslag í Dölum …
Umhverfisviðurkenningar
Sú nýbreytni verður tekin upp á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal að veittar verða umhverfisviðurkenningar. Því er um að gera að nota vorið til að hressa upp á umhverfið. Tekið verður við tilnefningum þegar nær dregur. Veittar verða viðurkenningar fyrir snyrtilegasta fyrirtækið í Dalabyggð snyrtilegasta garðinn í Búðardal snyrtilegasta býlið í Dalabyggð
Auðarskóli – leikskóladeild
Auðarskóli óskar eftir að ráða í stöður leikskólakennara og deildarstjóra á leikskóladeild skólaárið 2018-2019. Við Auðarskóla er laus 100% staða leikskólakennara til framtíðar og 80% staða deildarstjóra á yngri deild leikskólans fyrir skólaárið 2018-2019. Mikilvægt er að umsækjendur búi að færni í samskiptum frumkvæði í starfi sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögð góðri íslenskukunnátta Umsóknarfrestur er til 8. júní 2018. Umsækjendur þurfa …
Viðvera félagsráðgjafa
Viðverutímar félagsráðgjafa í Dalabyggð verða óreglulegir í sumar. Næstu viðverutími verða fimmtudaginn 7. júní, miðvikudaginn 20. júní, miðvikudaginn 4. júlí, miðvikudaginn 18. júlí, miðvikudaginn 1. ágúst og miðvikudaginn 29. ágúst. Föst viðvera félagsráðgjafa er í Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar, Miðbraut 11, Búðardal annan og fjórða miðvikudag hvers mánaðar frá kl 13 til 16. Tímapantanir eru í síma 433 7100 eða 898 9222 milli …
Afgreiðsla sýslumanns í Búðardal
Frá og með föstudeginum 1. júní verður afgreiðsla Sýslumannsins á Vesturlandi í Búðardal opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10-15.