18.08.2022
Námskeið í tæknilæsi fyrir 60+
Námskeiðin, sem kostuð eru af félags- og vinnumálaráðuneytinu eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Þetta er liður í átaki ráðuneytisins um eflingu tæknilæsis hjá fólki sextíu ára og eldra um allt land. Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu og skilning á: Rafrænum skilríkjum og notkun þeirra Heimabanka og stafrænum viðskiptum Netöryggi Samfélagsmiðlum og efnisveitum Notkun tölvupósts, forrita, smáforrita og netleitar
Skoða betur







