10.08.2020
Rekstur mötuneytis dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns
Dalabyggð óskar eftir tilboðum í rekstur mötuneytis dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns. Á heimilinu búa 13 íbúar og starfsfólk er einn til sex á hverri vakt. Um er að ræða fimm máltíðir á sólarhring fyrir íbúa og starfsfólk heimilisins alla daga ársins. Einnig eiga eldri borgarar búsettir í Dalabyggð utan heimilisins kost á að koma í hádegismat eða fá heimsendan mat.
Skoða betur









