Fréttir.

22.12.2017

Laugar og Sælingsdalstunga til sölu

Dalabyggð hefur auglýst til sölu allar eignir sveitarfélagsins á Laugum í Sælingsdal þar á meðal 50% hlut í jörðinni. Einnig jörðina Sælingsdalstungu að undanskildu vatnsverndarsvæði, vatnsréttindum og vatnsveitu. Nánari upplýsingar eru á fasteignavef mbl.is. Samkvæmt bókun sveitarstjórnar 14. desember sl. verður tekið við tilboðum til og með 29. desember nk.
Skoða betur
18.12.2017

Auðarskóli – leikskólakennarar

Auðarskóli auglýsir eftir að ráða í tvær stöður leikskólakennara frá og með 1. janúar 2018. Um er að ræða tvær 100% stöður. Umsóknarfrestur er til 27. desember 2017. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni eru að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarnanna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara. Hæfniskröfur eru · leikskólakennaramenntun eða sambærilega menntun sem nýtist í
Skoða betur
12.12.2017

Uppbyggingarsjóður Vesturlands

Auglýst er eftir umsóknum í uppbyggingasjóð Vesturlands. Veittir verða atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir, menningarstyrkir ásamt stofn- og rekstrarstyrkjum til menningarverkefna. Umsóknarferlið er á Ísland.is og notast er við Íslykil til innskráningar. Nánari upplýsingar má fá í síma 433 2310 eða senda fyrirspurn til uppbyggingasjodur@ssv.is. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út á miðnætti 17. janúar 2018. Uppbyggingarsjóður Vesturlands
Skoða betur
07.12.2017

Ert þú með nýja hugmynd eða fyrirtæki í ferðaþjónustu?

Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Ár hvert eru allt að tíu sérvalin sprotafyrirtæki valin til þátttöku og fá þau tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu. Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra
Skoða betur
03.12.2017

Hjeraðssamband Dalamanna

Laugardaginn 9. desember kl. 15 verður sögustund á Byggðasafni Dalamanna í samvinnu við UDN og verður þjófstartað á 100 ára afmæli UDN. En einmitt þennan dag, 9. desember, árið 1917 hafði verið boðað til stofnfundar Hjeraðssambands Dalamanna í Hjarðarholti. Rakinn verður aðdragandinn að stofnun Hjeraðssambands Dalamanna og annað það sem hafði áhrif á ungmennafélagsandann á upphafsdögum ungmennafélagshreyfingarinnar. Aðgangseyrir verður sem
Skoða betur
01.12.2017

Aðalskipulag Dalabyggðar 2004-2016

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 22. nóvember 2017 að auglýsa skipulags- og matslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016. Hér er sett fram sameiginleg skipulags- og matslýsing fyrir 7 breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004- 2016 samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingarnar sjö eru eftirfarandi: 1. Efnistökusvæði í landi Hvítadals í Hvolsdal. 2. Vindorkugarður við Hróðnýjarstaði. 3.
Skoða betur
29.11.2017

Forsetaheimsókn 6. – 7. desember 2017

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú koma í opinbera heimsókn í Dalabyggð dagana 6. og 7. desember. Miðvikudagurinn 6. desember 15:00 Hjúkrunarheimilið Fellsendi. 15:40 Rjómabúið Erpsstöðum. 16:10 Ostagerð MS í Búðardal. 16:40 Leifsbúð. Opinn fundur um framtíð í ferðaþjónustu. Kynnt verða áform um uppbyggingu í Ólafsdal, Vínlandssetur og söguhringinn um Fellsströnd og Skarðsströnd. Kaffiveitingar. 18:10 Byggðasafn Dalamanna
Skoða betur
29.11.2017

Jólatré við Auðarskóla

Kveikt verður á jólatré við Auðarskóla mánudaginn 4. desember kl. 17:30. Að venju verður dansað í kringum tréð og sungin jólalög, kannski með aðstoð jólasveina. Á eftir verður boðið upp á kaffi, súkkulaði og piparkökur í Dalabúð.
Skoða betur
28.11.2017

Stjarnan 100 ára

Þann 1. desember 1917 var ungmennafélagið Stjarnan stofnað í fundarhúsi Saurbæjarhrepps að Skollhóli.Af tilefni 100 ára afmælis Stjörnunnar verður boðið til kaffisamsætis í félagsheimilinu Tjarnarlundi laugardaginn 2. desember kl. 20. Meðal annars verða skemmtileg atvik úr starfi Stjörnunnar rifjuð upp, Fagradalsfrændur munu stíga á svið o.fl. Félagar og aðrir velunnarar Stjörnunnar eru hvattir til að mæta og eiga saman góða
Skoða betur
27.11.2017

Námskeið eldri borgara

Félag eldri borgara í Dölum og Reykhólasveit stendur fyrir námskeiði í keramikmálun í Rauðakrosshúsinu föstudaginn 1. desember kl. 11-18 og laugardaginn 2. desember kl. 10-18. Álfheiður Erla kennir á námskeiðinu. Hún mun koma með efni sem þátttakendur greiða fyrir. Hámark þátttakenda er 20. Námskeiðsgjald er 7.000 kr. Það þarf að skrá sig í síðasta lagi fimmtudaginn 30. nóvember hjá Svönu
Skoða betur
21.11.2017

Kínaferð Árna

Sunnudaginn 26. nóvember kl. 15 verður sögustund á Byggðasafni Dalamanna. Á dagskrá verður endurflutt efni og sagt frá Árna Magnússyni bónda frá Geitastekk í Hörðudal. Árni fór árið 1753 til Danmerkur, þá 27 ára gamall og þaðan lá leið hans víða um heim og var hann talinn víðförlastur Íslendinga á þeim tíma. Rakin verður ferð hans til Kína og fleiri
Skoða betur
21.11.2017

Sveitarstjórnarfundi frestað

Fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar sem halda átti í dag 21. nóvember er frestað. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 22. nóvember og hefst hann kl. 17.
Skoða betur
Fréttir.