Mannamót fór fram í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 19. janúar sl. Um er að ræða ferðaþjónustusýningu sem er fjölmennasti viðburður ferðaþjónustu á Íslandi. Þar er vettvangur ferðaþjóna til að stofna til viðskipta, mynda tengsl, skoða nýjungar og bera saman bækur. Á Mannamóti gefst ferðaþjónum vítt og breitt um landið tækifæri til að kynna sig á höfuðborgarsvæðinu, en á viðburðinn er …
Viltu vera heimsóknarvinur og láta gott af þér leiða?
Dalabyggð hefur óskað eftir samstarfi við Rauða krossinn í Dölum og Reykhólahreppi um að auglýsa eftir heimsóknavinum fyrir einstaklinga sem búa á Silfurtúni. Vinaverkefni er eitt elsta og stærsta sjálfboðaliðaverkefni Rauða krossins á Íslandi. Vinir Rauða krossins eru sjálfboðaliðar sem heimsækja fólk á heimili þess, á stofnanir, sambýli og dvalar- og hjúkrunarheimili. Misjafnt er hvað felst í heimsókn er það …
Skimun fyrir leghálskrabbameini 9. febrúar
Skimun fyrir leghálskrabbameini verður 9. febrúar Konur sem hafa fengið boðsbréf eru hvattar til að panta tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini. Skimunarsögu og dagsetningu á boði má finna á heilsuvera.is Tímapantanir eru í síma 432 1450
Covid-19 örvunarskammtur – janúar 2023
Covid-19 örvunarskammtur – næst verður bólusett föstudaginn 27. janúar Fólk 60 ára og eldra og fólk með undirliggjandi sjúkdóma er hvatt til að þiggja örvunarskammt af bóluefni við Covid-19 ef fjórir mánuðir eða meira eru liðnir frá síðustu bólusetningu. Upplýsingar um fyrri bólusetningar má sjá á heilsuvera.is Bóka þarf tíma í bólusetningu í síma 432 1450
9,7 milljónir úr Uppbyggingarsjóði í Dalabyggð
Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) var haldin föstudaginn 20. janúar sl. Heildarúthlutun styrkja var 48.080.000 krónur og var þeim úthlutað á 81 verkefni en alls bárust 121 umsókn í þremur flokkum: Atvinnu- og nýsköpunarstyrkir, Menningarstyrkir og Stofn- og rekstrarstyrkir menningar. Það er ánægjulegt að segja frá því að 9.700.000kr.- komu í hlut verkefna í Dalabyggð eða 13 verkefni …
Bókasafnið opnar kl.14 í dag (24.01.2023)
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna opnar Héraðsbókasafn Dalasýslu ekki fyrr en kl.14:00 í dag, þriðjudaginn 24. janúar.
Ný heimasíða Auðarskóla
Auðarskóli í Búðardal hefur tekið í notkun nýja heimasíðu. Veffang síðunnar er audarskoli.is. Auðarskóli var stofnaður þann 1. ágúst 2009 við sameiningu allra skólastofnana í Dalabyggð. Skólinn er því samrekinn skóli með fjórar fjárhagslega sjálfstæðar deildir; leikskóla, tónlistarskóla, grunnskóla og mötuneyti. Eins og gefur að skilja er því nokkuð mikið efni sem hýst er á nýrri síðu. Uppfærsla á heimasíðunni …
Átak í asparræktun – námskeið
Mikill og vaxandi áhugi er á skógrækt í landinu og fram hefur komið að skortur er á skógarplöntum til að mæta aukinni eftirspurn. Óvíða eru betri skilyrði fyrir skógrækt en í Dalabyggð og hafa nú nokkrir aðilar tekið höndum saman um að vinna að því að koma á fót plöntuframleiðslu á svæðinu. Eitt verkefni á því sviði felst í að …
Framkvæmdir á bókasafni
Næstu daga standa yfir framkvæmdir á Héraðsbókasafni Dalasýslu sem valda því að barna- og unglingabækur verða ekki alveg jafn aðgengilegar og venjulega. Við biðjumst velvirðingar á þessum truflunum og vonumst til að geta komið öllu í samt horf sem fyrst.
Matvælasjóður opnar fyrir umsóknir 1. febrúar
Matvælasjóður opnar fyrir umsóknir 1. febrúar 2023. Heildarúthlutunarfé sjóðsins að þessu sinni 580,3 milljónir króna. Umsóknarfrestur verður til miðnættis 28. febrúar 2023. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Sjóðurinn veitir styrki í fjórum flokkum: Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi, úr hugmynd yfir í …