Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Verðkönnun: Ræstingar í Auðarskóla og Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar”
07.07.2023

Verðkönnun: Ræstingar í Auðarskóla og Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar

Dalabyggð óskar eftir verði í ræstingar á húsakynnum Auðarskóla (Miðbraut 6-8, 370 Búðardal) og Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar (Miðbraut 11, 370 Búðardal). Verkefnið felur í sér ræstingu í húsakynnum Auðarskóla (skólastofur, gangar, herbergi, anddyri, skrifstofur og mötuneyti ásamt salernum) og ræstingu í Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar (anddyri, skrifstofur, stigagangar, bókasafn, lyfta, eldhús, salir og salerni). Ræsting getur m.a. verið að rykmoppa, blautþvo eða ryksuga
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Forgangröðun vegaframkvæmda afhent innviðaráðherra og vegamálastjóra”
06.07.2023

Forgangröðun vegaframkvæmda afhent innviðaráðherra og vegamálastjóra

Þriðjudaginn 4. júlí var nýsamþykkt forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð afhent Sigurði Inga Jóhannssyni, innviðaráðherra og Bergþóru Þorkelsdóttur, vegamálastjóra. Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri hitti vegamálastjóra í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar í Suðurhrauni og afhenti henni forgangsröðunina. Pálmi Þór Sævarsson, umdæmisstjóri Vestursvæðis var með þeim í gegnum fjarfundabúnað. „Vegagerðin fagnar því þegar hugmyndir manna í héraði eru settar fram á vandaðan og frambærilegan hátt
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Laus störf við Auðarskóla”
30.06.2023

Laus störf við Auðarskóla

Auðarskóli leitar að metnaðarfullum, jákvæðum og skapandi starfsmönnum með þekkingu og áhuga á skólastarfi! Auðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli og er staðsettur í Búðardal sem er eini þéttbýliskjarni sveitarfélagsins. Á næsta skólaári verða 75 nemendur í 1.-10. bekk grunnskólans og um 22 börn í leikskólanum. Helmingur nemenda grunnskólans stundar einnig tónlistarnám. Einkunnarorð skólans eru: Ábyrgð-Ánægja-Árangur. Starfsandinn í skólanum er
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Auglýst eftir húsnæði fyrir fólk á flótta”
30.06.2023

Auglýst eftir húsnæði fyrir fólk á flótta

Auglýst er eftir mögulegu húsnæði í Dalabyggð fyrir fólk á flótta.  Æskilegra er að húsnæðið sé til afnota til lengri tíma og þarf það að uppfylla skilyrði til fastrar búsetu og lögheimilisskráningar.  Þeir sem hafa mögulegt húsnæði á lausu hafi samband við Jóhönnu Maríu, verkefnastjóra með því að senda póst á johanna@dalir.is
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Útboð: Rekstur mötuneytis Auðarskóla”
30.06.2023

Útboð: Rekstur mötuneytis Auðarskóla

Dalabyggð óskar eftir tilboðum í rekstur mötuneytis fyrir Auðarskóla, samrekinn grunn- og leikskóla í sveitarfélaginu. Verkið snýst um innkaup aðfanga, framleiðslu, framreiðslu á tilteknum tíma, samantekt og frágang að máltíðum loknum. Meginmarkmið með rekstri mötuneytis Auðarskóla er að við matseðlagerð, hráefnisval, matreiðslu og framreiðslu sé haft að leiðarljósi  að maturinn sé  hollur og næringarríkur, sé lystugur og henti börnunum. Vettvangsskoðun
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Tækifæri til verðmætasköpunar”
26.06.2023

Tækifæri til verðmætasköpunar

Dalabyggð – boð til samtals Hlédís Sveinsdóttir og Björn Bjarnason unnu að gerð tillagna að baki fyrstu landbúnaðarstefnunni sem Alþingi samþykkti nú 1. júní 2023. Þau vinna nú að tækifæragreiningu fyrir samstarfsverkefni SSV, SSNV og Vestfjarðastofu. Um er að ræða verkefni til að efla byggð á landsvæðum sem eiga mest undir sauðfjárrækt. Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar og
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn staðfestir forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð”
21.06.2023

Sveitarstjórn staðfestir forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð

Atvinnumálanefnd Dalabyggðar vann skýrslu um forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð vorið 2023. Skýrslan var tekin til umræðu á fundi sveitarstjórnar og staðfest á 235. fundi sveitarstjórnar þann 15. júní 2023. Markmiðið með gerð forgangsröðunar er að setja fram raunhæfa áætlun um vegaframkvæmdir í Dalabyggð. Vissulega væri hægt að hafa mun fleiri tillögur en hér eru lagðar fram en skýrslunni er ætlað
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Vantar starfsmann við heimaþjónustu”
21.06.2023

Vantar starfsmann við heimaþjónustu

Starfsmann vantar hjá félagsþjónustu Dalabyggðar við heimaþjónustu á einu heimili. Í félagslegri heimaþjónustu er veitt aðstoð við þrif, heimilisstörf og/eða félagslegur stuðningur til að gera viðkomandi kleift að búa á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður. Umsækjandi þarf að vera stundvís, áreiðanlegur, heiðarlegur og hafa góða samskiptahæfileika. Öll eldri en 17 ára (með bílpróf) hvött til að sækja um. Frekari
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Minnum á sumarbingó bókasafnsins 2023”
21.06.2023

Minnum á sumarbingó bókasafnsins 2023

Héraðsbókasafn Dalasýslu verður lokað frá 30. júní til og með 9. ágúst nk. vegna sumarleyfa.  Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er fimmtudagurinn 29. júní og viljum við því minna á sumarbingó bókasafnsins. Bingóið er lestrarátak Dalabyggðar yfir sumartímann fyrir börn á aldrinum 5-12 ára, hægt er að nálgast bingóspjöld á bókasafninu. Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Gleðilega þjóðhátíð – pistill sveitarstjóra”
16.06.2023

Gleðilega þjóðhátíð – pistill sveitarstjóra

Ágætu íbúar Dalabyggðar og aðrir velunnarar Dalanna. Um leið og ég óska okkur öllum gleðilegrar hátíðar í tilefni 17. júní þá langar mig til að stikla á stóru varðandi það sem helst hefur verið á döfinni á vettvangi Dalabyggðar síðustu daga og vikur og einnig að koma inn á það sem er í farvegi á næstunni og byggi þessa mola
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn staðfestir Jafnréttis- og framkvæmdaáætlun Dalabyggðar”
15.06.2023

Sveitarstjórn staðfestir Jafnréttis- og framkvæmdaáætlun Dalabyggðar

Í lögum er kveðið á um að sveitarfélög skipi jafnréttisnefndir og geri jafnréttisáætlanir með framkvæmdaáætlun. Jafnframt kemur þar fram að heimilt sé að fela annarri nefnd þennan málaflokk. Í Dalabyggð er það félagsmálanefnd sem fer með störf jafnréttisnefndar sbr. A-hluta 48. gr. samþykkta um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar 391/2018. Á 235. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar kom til umræðu Jafnréttis- og framkvæmdaáætlun Dalabyggðar
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Frá sameiginlegum fundi sveitarstjórnar og ungmennaráðs Dalabyggðar”
15.06.2023

Frá sameiginlegum fundi sveitarstjórnar og ungmennaráðs Dalabyggðar

Sameiginlegur fundur sveitarstjórnar og ungmennaráðs Dalabyggðar var haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 15. júní 2023 og hófst kl. 16:00 Fundarmenn: Frá ungmennaráði voru Jóhanna Vigdís Pálmadóttir, Matthías Hálfdán Ostenfeld Hjaltason og Kristín Ólína Guðbjartsdóttir. Frá sveitarstjórn voru Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Ingibjörg Þóranna Steinudóttir, Garðar Freyr Vilhjálmsson, Þuríður Jóney Sigurðardóttir, Skúli Hreinn Guðbjörnsson, Jón Egill Jónsson og Alexandra Rut Jónsdóttir.
Skoða betur
Fréttir.