Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Skrifstofa Sýslumanns lokuð 26. september”
21.09.2023

Skrifstofa Sýslumanns lokuð 26. september

Skrifstofa Sýslumannsins á Vesturlandi í Búðardal, verður lokuð þriðjudaginn 26. september nk. Hefðbundin opnun fimmtudaginn 28. september nk.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Kjötiðnaðarnámskeið – af beini til afurðar”
21.09.2023

Kjötiðnaðarnámskeið – af beini til afurðar

Tveggja daga námskeið í Miðskógi í Dalabyggð Laugardaginn 30. september kl. 09:00 – 16:00 Sunnudaginn 1. október kl. 09:00 – 15:00 Verð: 80.000kr með lambsskrokk Verð: 58.000kr ef þátttakandi kemur með lambsskrokk Þátttakendur eiga allar sínar afurðir af námskeiðinu Aðeins eru 8 pláss í boði! Stéttarfélög niðurgreiða námskeiðskostnað allt að 100% Leiðbeinendur eru kjötiðnaðarmeistararnir: Rúnar Ingi Guðjónsson og Jónas Þórólfsson
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Nýsköpun í vestri: Frumkvöðla- og fyrirtækjamóti á Vesturlandi”
20.09.2023

Nýsköpun í vestri: Frumkvöðla- og fyrirtækjamóti á Vesturlandi

Vakin er athygli á  Nýsköpun í vestri: Frumkvöðla- og fyrirtækjamóti á Vesturlandi sem fram fer föstudaginn 29. september kl. 10-18 í Hjálmakletti í Borgarnesi.   Markmið frumkvöðla- og fyrirtækjamótsins er efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu. Nýsköpun í vestri er stefnumót nýrra og reyndra frumkvöðla og rótgróinna fyrirtækja,
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Uppskeruhátíð Sumarbingós Héraðsbókasafnsins”
20.09.2023

Uppskeruhátíð Sumarbingós Héraðsbókasafnsins

Fimmtudaginn 28.september kl. 16:30 býður Hérðasbókasafn Dalasýslu þeim börnum sem skiluðu inn útfylltum bingóblöðum sínum sumarið 2023, að koma á bókasafnið og fá afhentar þátttökugjafir.   Þeim er velkomið að bjóða fjölskyldunni með sér og gleðjast yfir velheppnuðu lestrarátaki. Í sumar stóð Héraðsbókasafn Dalasýslu fyrir lestrarátaki fyrir börn á aldrinum 5-12 ára í formi sumarbingós. Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Áskorun til stjórnar og stjórnenda Samkaupa frá sveitarstjórn Dalabyggðar”
18.09.2023

Áskorun til stjórnar og stjórnenda Samkaupa frá sveitarstjórn Dalabyggðar

Sveitarstjórn Dalabyggðar bókaði svohljóðandi áskorun til stjórnar Samkaupa á 237. fundi sveitarstjórnar sem fram fór þann 14. september sl. „Við í Dalabyggð erum að leita allra leiða til að efla samfélagið okkar og innviði til hagsældar fyrir íbúa og aðra. Í ákveðnum efnum hefur nokkuð áunnist en hvað dagvöruverslun varðar, sem býður upp á helstu nauðsynjar til heimilisreksturs, þá stöndum
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Bókun sveitarstjórnar Dalabyggðar vegna laxeldis í sjókvíum”
18.09.2023

Bókun sveitarstjórnar Dalabyggðar vegna laxeldis í sjókvíum

Sveitarstjórn Dalabyggðar bókaði svohljóðandi á 237. fundi sveitarstjórnar sem fram fór þann 14. september sl. „Sveitarstjórn Dalabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri staðreynd að nú séu að veiðast eldislaxar í ám í sveitarfélaginu líkt og reyndin er víða í nágranna héruðum. Íslenski laxastofninn, hreinleiki hans og orðspor er dýrmætt vörumerki sem mikilvægt er að standa vörð um. Í Dalabyggð
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Óskað eftir framboðum í ungmennaráð Dalabyggðar”
14.09.2023

Óskað eftir framboðum í ungmennaráð Dalabyggðar

Fræðslunefnd Dalabyggðar óskar eftir framboðum í ungmennaráð. Í ungmennaráði geta orðið allir þeir sem eiga lögheimili í Dalabyggð og eru á aldrinum 14 – 20 ára. Hlutverk ungmennaráðs er m.a.: Að veita sveitarstjórn ráðgjöf um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu. Að gæta hagsmuna ungs fólks, koma skoðunum þeirra og  tillögum til skila. Að veita ungu fólki fræðslu og þjálfun í
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Laust starf: Starfsmaður við heimaþjónustu”
13.09.2023

Laust starf: Starfsmaður við heimaþjónustu

Starfsmann vantar hjá félagsþjónustu Dalabyggðar við heimaþjónustu á allt að 6 heimilum. Í félagslegri heimaþjónustu er veitt aðstoð við þrif, heimilisstörf og/eða félagslegur stuðningur til að gera viðkomandi kleift að búa á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður. Umsækjandi þarf að vera stundvís, áreiðanlegur, heiðarlegur og hafa góða samskiptahæfileika. Öll eldri en 17 ára (með bílpróf) hvött til að sækja
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Leikskólakennari/leiðbeinandi”
12.09.2023

Leikskólakennari/leiðbeinandi

Auðarskóli leitar að metnaðarfullum, jákvæðum og skapandi starfsmönnum með þekkingu og áhuga á skólastarfi !  Auðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli og er staðsettur í Búðardal sem er eini þéttbýliskjarni sveitarfélagsins. Einkunnarorð skólans eru Ábyrgð-Ánægja-Árangur. Menntunar- og hæfniskröfur kennara: Leyfisbréf kennara, önnur uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn Dalabyggðar – fundarboð á fund nr. 237”
12.09.2023

Sveitarstjórn Dalabyggðar – fundarboð á fund nr. 237

237. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 14. sept. 2023 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál 1.   2309007 – Staða innviða 2.   2102018 – Fóðuriðjan Ólafsdal ehf. Fundargerð 3.   2308002F – Byggðarráð Dalabyggðar – 313 3.1 2208006 – Fjárhagsáætlun 2023, staða á rekstri fyrstu 6 mánuði ársins 2023. 3.2 2308012 – Fjárhagsáætlun 2023-Viðauki IV 3.3 2304023 – Framkvæmdir 2023 3.4 2307001
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Dalabyggð í sókn – ímynd, aðdráttarafl og staðarandi”
11.09.2023

Dalabyggð í sókn – ímynd, aðdráttarafl og staðarandi

Kæri íbúi í Dalabyggð Okkur íbúum Dalabyggðar er nú boðið að taka þátt í könnuninni „Staðarandi í Dalabyggð“. Þessi könnun er liður í verkefninu „Dalabyggð í sókn – ímynd, aðdráttarafl og staðarandi“ sem er samstarfsverkefni Dalabyggðar, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og Háskólans á Bifröst og er styrkt af byggðaáætlun. Markmið verkefnisins er að útbúa vörumerki og verkfærakistu fyrir Dalabyggð sem
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Augnlæknir í Búðardal ”
06.09.2023

Augnlæknir í Búðardal 

Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður með móttöku á heilsugæslustöðinni í Búðardal fimmtudaginn 14. september n.k. Tímapantanir eru í síma 432 1450
Skoða betur
Fréttir.