Tímabundin breyting á opnunartíma bókasafns

DalabyggðFréttir

Næstu tvær vikur mun opnunartími Héraðsbókasafns Dalasýslu færast um klukkutíma. Safnið mun því opna kl 13:30 á þriðjudögum og fimmtudögum. Áfram er opið til kl. 17:30 báða dagana. Athugið að fimmtudaginn 12. maí nk. verður bókasafnið opið frá 15:00 til 17:30. Venjulegur opnunartími tekur aftur gildi 24. maí nk.

Local Government Elections in Iceland on 14 May 2022

DalabyggðFréttir

Multicultural Information Centre For more information in English and other languages about the upcoming elections, please visit the website of the Multicultural Information Centre https://www.mcc.is/x22/   Voting Procedures – Instructions for Foreign Nationals Regarding the Local Government Elections in Iceland on 14 May 2022 Local government (municipal council) elections will be held on 14 May 2022. Right to vote Foreign nationals …

Framboðsfundur vegna sveitarstjórnarkosninga – upptaka

DalabyggðFréttir

Framboðsfundur vegna sveitarstjórnarkosninga 14. maí 2022 var haldinn miðvikudaginn 4. maí kl. 20:00 í félagsheimilinu Dalabúð. Níu aðilar voru með framsögu og ein kynning lesin upp af fundarstjóra. Opið var fyrir spurningar eftir kynningar frambjóðenda. Fundurinn var tekinn upp og er aðgengilegur á YouTube-rásinni „Dalabyggð TV“ en upptökuna má einnig nálgast hér fyrir neðan. Biðjumst velvirðingar á að sumar spurningar …

Styttist í götusópun

DalabyggðFréttir

Nú styttist í götusópun í Búðardal, við viljum biðja íbúa um að fylgjast með á næstu dögum þegar tilkynning kemur inn varðandi þá daga sem verður hreinsað, til að færa ökutæki og annað af götum svo árangurinn verði sem bestur.

Bilanaleit á Skarðströnd

DalabyggðFréttir

Rafmagnsbilun er í gangi á Skarðströnd, verið er að leita að bilun. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit hafðu þá vinsamlega samband við Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9000. Kort af svæði sem talið er vera um að ræða má sjá á www.rarik.is/rof

Sveitarstjórnarkosningar 2022

DalabyggðFréttir

Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalabyggð verður í Dalabúð laugardaginn 14. maí 2022 kl. 10-20. Í Dalabyggð verða óbundnar kosningar (persónukjör). Allir kjósendur eru því í kjöri. Löglega undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrirfram skorast undan kjöri eru þeir sem áður hafa setið í sveitarstjórn. Halla Sigríður Steinólfsdóttir í Ytri-Fagradal skorast undan að taka kjöri. Kjörskrá fyrir Dalabyggð vegna …

Breytt viðvera atvinnuráðgjafa – 4. maí

DalabyggðFréttir

Ólafur Sveinson, fagstjóri atvinnuþróunar hjá SSV verður með viðveru í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal 4. maí nk. (miðvikudag) frá kl.13:00-15:00. Samkvæmt viðveruplani atvinnuráðgjafa ætti Ólafur að vera á þriðjudegi en í þetta sinn frestast það um einn dag. Minnum á að  opið er fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands til og með 10. maí nk. og hægt er að fá ráðgjöf hjá Ólafi varðandi …

Frístundastyrkir Dalabyggðar fyrir börn og ungmenni

DalabyggðFréttir

Til að fá frístundastyrk fyrir börn á aldrinu, 3 til 18 ára greiddan þarf að skila umsókn ásamt greiðslukvittunum til skrifstofu Dalabyggðar eigi síðar en 15. maí. Umsóknareyðublað fyrir frístundastyrk Reglur um frístundastyrk Dalabyggðar

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 219. fundur

DalabyggðFréttir

219. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 3. maí 2022 og hefst kl. 16:00   Dagskrá:  Almenn mál 1.   2203021 – Sveitarstjórnarkosningar 2022 2.   2003041 – Sólheimar – breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers 3.   2003042 – Hróðnýjarstaðir – breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers 4.   2002053 – Endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar 5.   2204019 – Fjárhagsáætlun 2022 – Viðauki …

Árshátíð Auðarskóla

DalabyggðFréttir

Fimmtudaginn þann 5. maí næstkomandi verður haldin árshátíð nemenda Auðarskóla. Skemmtiatriði verða í umsjón nemenda grunnskóladeildar. Boðið verður upp á súpu og meðlæti. Árshátíðin verður í Dalabúð og hefst kl. 17:00, húsið opnar 16:30. Áætlað er að dagskrá og matur taki allt að tveimur klukkustundum. Miðaverð er 1.000 kr. á mann fyrir 6 ára og eldri, frítt fyrir nemendur skólans. …