Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi í sumar, viðhaldi leshraða, lesskilningi og njóti lestursins. Lestur ýtir undir betri og fjölbreyttari orðaforða, styður við þroska barna og eykur þekkingu þeirra á svo margan hátt. Skólar og bókasöfn standa reglulega fyrir lestrarátaki en yfir sumartímann er hætt við að lestur detti niður eða gleymist í fríi og ferðalögum. …
Sýningunni „Heimferð“ aflýst vegna veikinda
Sökum veikinda verður sýningunni „Heimferð“ eftir Handbendi brúðuleikhús, því miður að aflýst á eftirfarandi sýningarstöðum: Búðardal, Stykkishólmi, Grundarfirði og Rifi. Við biðjumst innilega afsökunar á þessu, og skömmum fyrirvara, en við þetta er ekki ráðið. Þeir sem hafa keypt miða fá þá endurgreidda hjá tix.is Við biðjumst innilega afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. – Handbendi brúðuleikhús
Laust starf: Sveitarstjóri Dalabyggðar
Starf sveitarstjóra í Dalabyggð er laust til umsóknar og er leitað að kraftmiklum og drífandi einstaklingi til að stýra krefjandi verkefnum á vegum sveitarfélagsins. Rík áhersla er á að efla atvinnulíf og þjónustu við fjölskyldur. Starfið felst meðal annars í að vinna af krafti að nýjum verkefnum sem sveitarfélagið er með í bígerð og má þar meðal annars nefna byggingu …
Krakkasumarið 2022 – Íþróttafélagið Undri
Leikjanámskeið Undri býður upp á leikjanámskeið fyrir börn fædd 2010-2015. Um er að ræða þriggja vikna námskeið dagana: 7.-10. júní, 13.-16. júní og 20.-23. júní frá kl. 08:00- 12:00. Verð: 15.000 kr.- Skráning fer fram hjá Jóni Agli á tomstund@dalir.is Umsjónarmenn leikjanámskeiðs verða: Sara, Jódí og Kristín. Frjálsar íþróttir Æfingar verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13:00-14:00, niðri í …
Óskað eftir aðilum í nefndarstörf
Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggðar óskar eftir því að einstaklingar sem hafa áhuga á að starfa í nefndum Dalabyggðar 2022-2026 gefi kost á sér með því að senda tölvupóst á dalir@dalir.is eða hafa samband við skrifstofu Dalabyggðar í síma 430-4700. Sveitarstjórn mun skipa í flestar nefndir á 221. fundi sveitarstjórnar þann 16. júní nk. Þeir sem hafa áhuga á nefndarstörfum þurfa því …
Skrifstofa Dalabyggðar – styttri opnun 3. júní 2022
Skrifstofa Dalabyggðar í Stjórnsýsluhúsinu að Miðbraut 11 verður með styttri opnunartíma á morgun, föstudaginn 3. júní. Skrifstofan verður opin frá 09:00 til 11:00.
Matjurtagarður í Búðardal
Nú er búið að tæta matjurtagarðinn í Búðardal fyrir áhugasama. Þar geta íbúar Dalabyggðar sett niður og sinnt matjurtum í sumar. Gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær, einstaklingar sjá sjálfir um að taka frá reit í matjurtagarði. Gott er að afmarka reitina með sjáanlegum hætti. Ekki er tekið gjald fyrir afnot af reit í garðinum. Garðurinn er staðsettur til hliða …
Sumaropnun Héraðsbókasafns Dalasýslu
Frá 9. júní til 23. júní verður bókasafnið opið á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13:30 – 17:00. Safnið verður lokað í sumar frá 27. júní til og með 5. ágúst. Opnar að nýju þriðjudaginn 9. ágúst.
Timbur- og járngámar – sumar 2022
Timbur- og járngámar verða aðgengilegir í dreifbýli Dalabyggðar eins og síðustu ár. Gámarnir verða staðsettir á hverjum stað í vikutíma, frá fimmtudegi til fimmtudags. Stað- og tímastaðsetningar gáma Saurbær – Tjarnarlundur 23. – 29. júní Skarðsströnd – Skarð 23. – 29. júní Fellsströnd – Valþúfa 30. júní – 6. júlí Fellsströnd – Ytra-Fell 30. júní – …
Laust starf: Tímavinna við gangbrautarmerkingar
Dalabyggð óskar eftir starfskrafti í tímavinnu við að mála gangbrautarmerkingar í Búðardal. Verkið verður unnið undir umsjón umsjónarmanns fasteigna hjá Dalabyggð. Vinnutími er breytilegur og þarf að haga honum í samræmi við veður. Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið dalir@dalir.is fyrir 8. júní.




