Tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Ólafsdal

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 20. febrúar 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi í Ólafsdal í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felst meðal annars í ákveðnum áherslubreytingum frá gildistöku þess. Til að mynda er nýr byggingarreitur fyrir vélaskemmu, víkkun heimilda á núverandi byggingareitum og nýr kafli um verndun menningarlandslags.

Tillögurnar liggja frammi frá 8. mars 2018 á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11 í Búðardal og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins www.dalir.is.

Athugasemdum ber að skila til skrifstofu skipulagsfulltrúa að Miðbraut 11, 370 Búðardal eða á netfangið byggingarfulltrui@dalir.is fyrir 20. apríl 2018.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei