| |
1. 2010009 - Kannanir - framhaldsskóladeild og námsaðstaða | |
Ungmennaráð telur hugmyndina áhugaverða en velta fyrir sér hvort ásókn verði í framhaldsskóladeild í heimabyggð þar sem spennandi er að fara annað í framhaldsskóla. Nefndin og ungmennaráð ræða kosti og galla þess að hafa framhaldsskóladeild og hversu mikilvægt er að hafa val um að stunda nám í heimabyggð. Mikilvægt er að það sé félagslíf, íþróttastarf ofl. Hugmyndin er líka sniðug fyrir þá sem vilja byrja fyrr eða seinna á framhaldsskólanámi. Nefndin vinnur áfram að málinu.
| | Sigurdís Katla Jónsdóttir, Soffía Meldal, Birna Rún Ingvarsdóttir og Dagný Sara Viðarsdóttir sátu fundinn undir dagskrárlið 1.
| |
|
2. 2103023 - Stuðningur til að efla virkni, vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu á tímum COVID-19 | |
Jón Egill íþrótta- tómstundafulltrúi fer yfir málið og þær hugmyndir sem hafa komið fram til að efla frístundastarf fyrir börn í viðkvæmri stöðu. Nefndin leggur til að íþrótta- og tómstundafulltrúi, skólastjóri og formaður vinni að málinu og umsókn áfram. | Tölvupóstur - 12_03_2021 - frá félagsmálaráðuneytinu.pdf | | Jón Egill Jónsson íþrótta- og tómstundafulltrúi sat fundinn undir dagskrárliðum 1 og 2.
| |
|
3. 2103027 - Uppfærsla samnings - Skátafélagið Stígandi | |
Jóhanna María verkefnastjóri fer yfir samningsdrögin með nefndinni og þær breytingar sem eru til skoðunar á honum. Fræðslunefnd samþykkir samninginn og vísar honum til sveitarstjórnar.
| Samningur_skátar_Stígandi_drög-fyrir-nefnd.pdf | | Jóhanna María Sigmundsdóttir verkefnastjóri sat fundinn undir dagskrárliðum 1, 2 og 3.
| |
|
4. 2101029 - Auðarskóli - Skóladagatöl 2021 - 2022 | Haraldur skólastjóri fer yfir skóladagatöl grunn- og leiksskóla fyrir skólaárið 2021-2022 Skóladagatal grunnskóla samþykkt samhljóða. Skóladagatal leikskóla samþykkt samhljóða.
| Leikskóladagatal 2021-2022-Auðarskóli.pdf | Lokaeintak 2021_2022.pdf | | |
|
| |
5. 2101030 - Auðarskóli - skólastarf 2020 - 2021 | Samkvæmt nýjustu tilmælum sóttvarnayfirvalda loka grunnskóluar frá og með 25.mars og fram að páskafríi. Skólastarf hingað til hefur gengið vel og verið er að vinna í að bæta skólabraginn. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar kom í skólann og hélt fyrirlestra um netnotkun bæði fyrir nemendur og foreldra. Árshátíðarundirbúningur gekk vel en því miður fellur árshátíðin niður að svo stöddu, vonandi verður hægt að halda hana síðar í einhverri mynd. | | |
|
6. 2102033 - Börn af erlendum uppruna og íþróttir | Lagt fram til kynningar. | Vertu með_Bréf til sveitarfélaga.pdf | | |
|
7. 2103024 - Áskorun til sveitarfélaga um að nota innlend matvæli í skólamáltíðir. | Bændasamtök Ísland skora á sveitarfélög að nýta innlend matvæli eins og kostur er við framleiðslu á skólamáltíðum, sérstaklega, grænmeti, kjöt og fisk. Fræðslunefnd styður þessa góðu áskorun heilshugar.
| Áskorun til sveitarfélaga.pdf | | |
|