| |
1. 2104022 - Fjárhagsáætlun 2022 og 2023-2025 | |
Skipulagsnefnd óskar eftir nánari útskýringum á fjárhagsáætlun. | | |
|
2. 2104020 - Haukabrekka, deiliskipulag | |
Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið með sjö frístundalóðum frá 1999 á frístundasvæði merkt (F2). Hið nýja fyrirhugaða deiliskipulag felur í sér breytta afmörkun lóðanna og í einu tilfelli nýja staðsetningu. Núgildandi deiliskipulag verður fellt úr gildi með gildistöku nýs deiliskipulags.
Skipulagstillagan var auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 22. júní til 4. ágúst sl. og bárust fjórar umsagnir frá lögboðnum aðilum þ.e. frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, Vegagerðinni, Minjastofnun Íslands og sveitarfélaginu Borgarbyggð.
Sveitarfélagið Borgarbyggð og Vegagerðin gera ekki athugasemdir við tillöguna.
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands bendir á í umsögn sinni að tryggja þurfi að verndarsvæði fyrirhugaðs vatnsbóls sé staðsett í skipulagi. Skipulagsnefnd áréttar að samkvæmt tillögunni verður neysluvatn tekið úr lind sem er vestan við svæðið, í hlíðum Grásteinsfjalls og er því utan skipulagssvæðis. Nefndin telur því réttast að vísa afgreiðslu þessarar athugasemdir til þeirrar vinnu sem nú á sér stað við heildarendurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands telur einnig æskilegt að hreinsimannvirki fyrir skólp séu staðsett á skipulagsuppdrætti. Skipulagsnefnd bendir á leiðbeinandi staðsetningu hreinsivirkja á skipulagsuppdrætti.
Minjastofnun gerir í umsögn sinni kröfu um að minjastaðir sem fundust við vettvangskönnun og voru mældir upp og skráðir verði settir inná skipulagsuppdráttinn ásamt 15 metra verndarsvæði. Ákvæði verði sett inn um að þessum minjum megi ekki raska.
Tekið hefur verið tillit til þessara ábendinga frá Minjastofnun og hafa ný minjasvæði og ný uppmæling þekktra minna ásamt 15 metra helgunarsvæðis verið færð inn á uppdrátt.
Skipulagsnefnd mælist til þess við sveitarstórn Dalabyggðar að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Brugðist hefur verið við athugasemdum og umsögnum sem bárust vegna málsins á fullnægjandi hátt að mati nefndarinnar. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða. | 8885-001-DSK-001-V03 HaukabrekkaEFTIRAUGL.pdf | 8885-001-DSK-002-V01 HaukabrekkaEFTIRAUGL.pdf | 2021 0628 Dalabyggð Haukabrekka Skógarströnd HEV.pdf | Byggðarráð Borgarbyggðar - 557 (22.7.2021) - Umsögn - Dalabyggð - Haukabrekka í Stóra-Langadal.pdf | Haukabrekka Dalabyggd.pdf | HEV umsögn.pdf | Hraunbrekka DSK Vegagerðin umsögn.pdf | | |
|
3. 2103016 - Skógræktaráform á jörðinni Barmi | |
Afgreiðslu málsins frestað þar til umsagnir stofnanna liggja fyrir. | | |
|
4. 2002053 - Endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar | |
Skipulagsnefnd leggur til að íbúafundur í tengslum við endurskoðun aðalskipulagsins verði haldinn þriðjudaginn 26. október. Til vara leggur nefndin til dagsetningarnar 27. eða 28. október.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
5. 2012016 - Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032. | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að óska eftir lengri umsagnartíma og verði málið tekið fyrir á fundi nefndarinnar 5. nóvember nk. | SAMEIGINLEG SVÆÐISÁÆTLUN UM MEÐHÖNDLUN ÚRGANGS 2021-2032.pdf | Fylgibréf til Dalabyggd.pdf | | |
|
6. 2109018 - Umsókn um merkingu stika og staura | |
Nefndin fagnar verkefninu en telur sveitarfélagið ekki vera hagsmunaaðila í málinu. Bendir nefndin ennfremur á að ekki megi merkja leiðir utan veghelgunarsvæðis nema með leyfi landeigenda.
Samþykkt samhljóða. | Merkingar Dalabyggð.pdf | | |
|
7. 2106026 - Umsókn um byggingarleyfi - eldsneytisafgreiðsla | |
Erindinu er frestað. Nefndin felur byggingarfulltrúa að ræða við Olís um atriði er varða brunavarnir, brunahönnun og aðliggjandi lóð og þar af leiðandi nálægð við íbúðarhús og staðsetningu eldsneytistanka ofanjarðar í þéttbýli. | | |
|
8. 2109020 - Umsókn um nafnabreytingu á staðfangi. | |
Nefndin gerir ekki athugasemd við nafnabreytinguna.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
9. 2003042 - Hróðnýjarstaðir - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers | |
Þar sem viðeigandi gögn bárust seint verður málið tekið fyrir á aukafundi í skipulagsnefnd þriðjudaginn 12. október. | | |
|
10. 2003041 - Sólheimar - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers | |
Þar sem viðeigandi gögn bárust seint verður málið tekið fyrir á aukafundi í skipulagsnefnd þriðjudaginn 12. október. | | |
|
11. 2109021 - Erindi varðandi hundasvæði í Búðardal | |
Nefndin fagnar erindinu og leggur til að hugmyndin verði unnin áfram á íbúafundi í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Dalabyggðar.
Samþykkt samhljóða. | Erindi er varðar hundsvæði í Búðardal.pdf | | |
|
12. 2110009 - Stofnun lóðar úr landi Ytri Hrafnabjarga 137939 | |
Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið og felur byggingarfulltrúa að afla fullnægjandi gagna og afgreiða málið.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
|
14. 2110014 - Umsókn um landskipti fyrir lóðina Stekkjarhlíð út úr jörðinni Geirshlíð 137918 | |
Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið.
Samþykkt samhljóða. | Stekkjarhlíð_lóðaruppdráttur_undirritaður.pdf | | |
|
15. 2110015 - Sælingsdalstunga - skipting jarðar á Svínadal | |
Nefndin hefur yfirfarið tillögu að skiptingu jarðarinnar Sælingsdalstungu og gerir ekki athugasemdir við hana, með fyrirvara um samþykki eigenda aðliggjandi jarða.
Samþykkt samhljóða | | |
|
16. 2110016 - Hróðnýjarstaðir - lausn úr landbúnaðarnotum | |
Málinu frestað og tekið fyrir á aukafundi í skipulagsnefnd þriðjudaginn 12. október. | | |
|
17. 2110017 - Sólheimar - lausn úr landbúnaðarnotum | |
Málinu frestað og tekið fyrir á aukafundi í skipulagsnefnd þriðjudaginn 12. október. | | |
|
Hörður Hjartarson vék af fundi undir þessum lið.
| 18. 2110018 - Ósk um nafnabreytingu | |
Nefndin gerir ekki athugasemd við nafnabreytinguna.
Samþykkt samhljóða. | veidifelag Hordudalsar.pdf | | |
|