Til bakaPrenta
Fræðslunefnd Dalabyggðar - 138

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
24.02.2025 og hófst hann kl. 14:15
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir formaður,
Jón Egill Jóhannsson aðalmaður,
Sindri Geir Sigurðarson aðalmaður,
Þórey Björk Þórisdóttir aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Herdís Erna Gunnarsdóttir skólastjóri, Jóna Björg Guðmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, Sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2501009 - Málefni grunnskóla 2025
Skólastjóri kynnti stöðu mála er varðar daglegt starf í grunnskólanum.
Rætt um reglur Dalabyggðar um móttöku fósturbarna í Auðarskóla.

Skólastjóri fór yfir stöðu mála í skólastarfinu.
Varðandi reglur um móttöku fósturbarna þá samþykkir fræðslunefnd að fela verkefnastjóra fjölskyldumála og skólastjóra að vinna tillögu að uppfærðum reglum fyrir næsta fund fræðslunefndar m.t.t. umræðna á fundinum.
Reglur um skólavist fósturbarna í leik- og grunnskóla í Dalabyggð.pdf
2. 2501010 - Málefni leikskóla 2025
Skólastjóri kynnti stöðu mála er varðar daglegt starf í leikskólanum.
Skólastjóri kynnti hvernig verið er að koma upplýsingum um stöðu gæðaviðmiða skólans á framfæri á heimasíðu Auðarskóla.
Einnig kynnti skólastjóri að bætt hefði verið í upplýsingagjöf í fréttabréfi til foreldra.
Á fundinn mættu og sátu undir lið þrjú tónlistarkennararnir Ólafur Einar Rúnarsson og Sigurbjörg I. Kristínardóttir.
3. 2501012 - Málefni Tónlistarskóla 2025
Rætt um málefni tónlistarskólans, námsframboð og fleira í framhaldi af umræðum á síðasta fundi.
Fram kom að ekki er í gildi samræmd skólanámskrá tónlistarskóla í landinu og það verið svo í töluverðan tíma. Rætt um möguleika þess að bjóða upp á einhverskonar opið nám fyrir yngstu nemendur í tónlist þannig að þeir gætu prófað fleiri en eitt hljóðfæri. Skólastjóri og kennarar taka jákvætt þess konar útfærslu og munu koma því á framfæri.
Rætt um hljóðfærakost skólans t.a.m. er flygill orðinn mjög lúinn. Fara þarf yfir þau mál sem og aðstöðu til að færa hljóðfærin. Einnig rætt um þann möguleika að bjóða upp á nám fyrir fullorðna.
Í tónlistarskólanum núna eru í kringum 40 nemendur.
Fræðslunefnd þakkar þeim Sigurbjörgu og Ólafi fyrir gott samtal.
4. 2501027 - Farsæld barna í Dalabyggð
Verkefnastjóri fjölskyldumála kynnir stöðu mála.
Verkefnastjóri fjölskyldumála kynnti yfirlit yfir þá tengiliði sem komnir eru varðandi farsæld barna í Dalabyggð og hvernig fyrirhugað er að halda á málum varðandi kynningu og fleira á næstunni.
Á fundinn mætti og sat undir lið fimm Guðný Erna Bjarnadóttir lýðheilsufulltrúi.
5. 2412001 - Félagsmiðstöðin Gildran
Farið yfir stöðu mála í starfsemi félagsmiðstöðvarinnar.
Lýðheilsufulltrúi og skólastjóri fóru yfir hvernig fyrirhuguð er starfsemi félagsmiðstöðvar fyrir miðstig og elsta stig. Á áætlun er að hefja starfið á næstunni og verður frekari tímasetning og útfærsla kynnt fyrir nemendum og foreldrum.
6. 2010009 - Akstur framhaldsskólanema úr Búðardal
Kynnt staða mála varðandi akstur á milli Búðardals og Borgarness v/framhaldsnáms í Menntaskóla Borgarfjarðar.
Rætt um akstur framhaldsskólanemenda í MB. Fræðslunefnd samþykkir að kynna núverandi fyrirkomulag og kalla jafnframt eftir því hvort nemendur óska eftir akstri í MB á næsta skólaári.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei