Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
23.11.2022 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Eyjólfur Ingvi Bjarnason formaður,
Guðrún Erna Magnúsdóttir aðalmaður,
Sigrún B Halldórsdóttir varamaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Inga Vildís Bjarnadóttir félagsráðgjafi,
Fundargerð ritaði: Eyjólfur Ingvi Bjarnason,
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2211014 - Samningur við Samskiptamiðstöðina
Drög að samningi við Samskiptamiðstöðina um vinnslu barnaverndarmála fyrir Dalabyggð kynnt.
Félagsmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að ganga til samninga við Samskiptamiðstöðina.
Samþykkt samhljóða
2. 2211015 - Samstarf um félagsþjónustu
Sveitarstjóri sagði nefndinni frá samtölum sem hafa átt sér stað við sveitarstjóra Reykhólahrepps og Strandabyggðar varðandi samstarf um félagsþjónustu sveitarfélaganna.
Nefndin líst vel á fyrirhugað samstarf og leggur til við sveitarstjórn að formgera samstarf um félagsþjónustu þessara sveitarfélaga. Horft verði til þess að ein sameiginleg velferðarnefnd/félagsmálanefnd starfi fyrir svæðið.