FRAMHALDSSKÓLAR
Þeir framhaldsskólar sem eru næst okkur:
- Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi
- Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði
- Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi
- Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki
Jöfnunarstyrkur er fyrir nemendur sem stunda nám fjarri heimabyggð, sjá www.menntasjodur.is
Sveitarfélagið veitir sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15-17 ára ungmenna. Ungmenni á heimavist, á námsgörðum eða í leiguherbergi hjá óskyldum vegna náms hér á landi, fjarri lögheimili eiga rétt á húsnæðisstuðningi, sé sambærilegt nám ekki í boði í sveitarfélaginu.
HÁSKÓLAR
Þeir háskólar sem eru næst okkur eru:
- Háskólinn á Bifröst
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Háskólinn á Hólum
FJARNÁM
Einnig er fjöldi framhalds- og háskóla sem bjóða upp á fjarnámsleiðir.
Dalabyggð er í samstarfi við Símenntun á Vesturlandi um próftöku framhalds- og háskólanema.
Hafið samband á simenntun@simenntun.is vegna próftöku.
Prófamiðstöð er staðsett í Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar að Miðbraut 11 í Búðardal.
Nemendur í framhaldsskóla og grunnnámi háskóla geta fengið aðgengi að námsaðstöðu í Stjórnsýsluhúsi að kostnaðarlausu gegn framvísun staðfestingar um skólavist hverja önn.
NÝSKÖPUNARSETUR – AUÐARSTOFA
Nýsköpunarsetri Dalabyggðar er að finna samvinnurými þar sem hægt er að leigja aðstöðu til lengri eða skemmri tíma. Tilvalin aðstaða fyrir nýsköpunarhugmyndir, frumkvöðlastarfsemi, störf án staðsetningar og námsmenn.
Þá er hægt að leigja lokaðar skrifstofur til lengri tíma. Leiguverði er haldið í lágmarki.
Sjá verðskrá hér: Nýsköpunarsetur
Setrið býður einnig upp á ýmsa möguleika varðandi uppstillingu s.s. fyrir námskeið, fyrirlestra og kennslu.
Leigjendum stendur til boða ýmis ráðgjöf og fræðsla frá samstarfsaðilum setursins s.s. er varðar bókhald, markaðsmál, fjármál, fræðslustarf og fyrirtækjarekstur.
SÍMENNTUN OG RAUNFÆRNIMAT
Símenntun á Vesturlandi sinnir símenntun, ráðgjöf og ýmsu námskeiðahaldi á Vesturlandi og hjálpar þannig íbúum að efla sig bæði í leik og starfi.
Meðal þess sem Símenntun sinnir er raunfærnimat þ.e. staðfesting og mat á raunverulegri þekkingu og færni einstaklings sem viðkomandi hefur öðlast með ýmsum hætti t.d. með starfsreynslu, félagsstörfum og fjölskyldulífi. Niðurstöður raunfærnimats eru m.a. nýttar til að stytta nám eða sýna fram á og auka færni á vinnumarkaði.
