Fréttir.

02.07.2010

Tilraunalandið

Tilraunalandið verður í Dölunum næsta mánudag, 5.júlí, við Leifsbúð í Búðardal. Tilraunalandið – hvað er það?Norræna húsið og Háskóli Íslands standa í sameiningu að verkefninu Tilraunalandi sem er vísindasýning fyrir börn og unglinga. Allir aldurshópar hafa gaman af sýningunni og hentar hún sérstaklega aldursbilinu 7 til 16.Sýningin er lifandi og gagnvirk og inniheldur ýmsar tilraunir og leiktæki þar sem vísindin
Skoða betur
02.07.2010

Prjónasamkeppni á haustfagnaði FSD

Prjónasamkeppni verður á hausfagnaði FSD í haust líkt og í fyrra. Einnig verður boðið upp á að selja kindahúfur á fagnaðinum. Prjónasamkeppni Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu auglýsir hér með að á haustfagnaði félagsins þann 22. og 23. október 2010 verður prjónasamkeppni líkt og í fyrra. Nema að þessu sinni er hugmyndarfluginu gefin laus taumur. Veitt verða verðlaun fyrir frumlegustu flíkina
Skoða betur
29.06.2010

Göngu- og hjólaferðir í Dölum

Ferðafélag Íslands og Út og vestur bjóða upp á átta skipulagðar göngu- og/eða hjólaferðir hér í Dölum í sumar. Næstu 7 helgar verður boðið upp á tveggja daga ferðir og um miðjan júlí er ein 4 daga ferð. Nánari upplýsingar eru á heimasíðum Ferðafélags Íslands og Út og vestur. 3.-4. júlí Klofningur – Dagverðarnes 10.-11. júlí Sælingsdalur – Saurbær 12.-15.
Skoða betur
24.06.2010

Sumarafleysingar á Silfurtúni

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Silfurtún óskar eftir starfsmanni í eldhús í sumarafleysingar í júlí, ágúst og fram í september. Upplýsingar í síma 434-1218 Hjúkrunarforstjóri.
Skoða betur
21.06.2010

Sveitarstjóri

Dalabyggð auglýsir lausa til umsóknar stöðu sveitarstjóra. Dalabyggð er öflugt landbúnaðarhérað með um 700 íbúa. Þéttbýliskjarni sveitarfélagsins er Búðardalur og er þar alla almenna þjónustu að finna. Árið 2009 voru tveir grunnskólar, leikskólinn og tónlistarskólinn sameinaðar í eina stofnun, Auðarskóla sem nú hefur lokið sínu fyrsta starfsári en er enn í mótun. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið er að finna á
Skoða betur
21.06.2010

Afmæli á Eiríksstöðum og bæjarhátíð

Laugardaginn 10. júlí nk. verður haldið upp á 10 ára afmæli Eiríksstaða ásamt því að blásið verður til léttrar bæjarhátíðar í Búðardal. Dagskráin hefst upp úr hádegi á Eiríksstöðum og verður þar mikið um húllumhæ. Víkingafélagið okkar verður á staðnum en einnig kemur í heimsókn víkingafélagið Hringhorni sem ætlar að gleðja gesti með allskonar leikjum og bardagaatriðum. Allir eru hvattir
Skoða betur
21.06.2010

Nafnasamkeppni

Félag víkinga í Dalasýslu og nágrenni, með aðsetur að Eiríksstöðum, Haukadal, efnir til samkeppni um nýtt nafn á félagið. Óskað er eftir tillögum að frumlegu og nýstárlegu heiti til handa félagi voru en um leið viðeigandi, sem á við starfsemi og markmið félagsins. Stjórn félagsins áskilur sér rétt til að hafna öllum tillögum sé engin tillaga við hæfi. Félagið heitir
Skoða betur
21.06.2010

Myndir frá Krosshólagöngu

Í myndasafni eru nú komnar nokkrar myndir frá Krosshólagöngu 19. júní. Myndirnar tók Halla S. Steinólfsdóttir. Fleiri myndir og frétt frá göngunni má finna á vef Dalaprestakalls.
Skoða betur
18.06.2010

Göngur og hlaup 19. júní

Nóg er í boði fyrir þá sem vilja hreyfa sig 19. júní; Kvennahlaup í Búðardal, Krosshólaganga í Hvammssveit og Þrístrendingur úr Gilsfirði í Kollafjörð, Bitrufjörð og aftur í Gilsfjörð. Kvennahlaupið hefst klukkan 11 frá upplýsingaskiltunum í Búðardal. Eftir kvennahlaupið er tilvalið að skella sér í Krosshólagönguna, mæting klukkan 14 við Krosshólaborg. Þrístrendingur hefst á Kleifum í Gilsfirði klukkan 10:00 og
Skoða betur
16.06.2010

Hátíðarhöld í Dalabyggð 17. júní

Hátíðarhöld 17. júní verða í Búðardal á vegum þjóðhátíðarnefndar Lions og í Saurbænum koma íbúar saman í skógræktargirðingunni Þverfelli samkvæmt hefð. Veðurspáin fyrir 17. júní um klukkan 12 er suðvestan 5 m/s, hiti 14°C . Úrkomulaust allan daginn. Dagskráin í Búðardal Kl. 13 – 13:50 við nýju höfnina í Búðardal Hestar, bátur og andlitsmálun. Kl. 14 Hátíðardagskrá Lionsfélagar gefa fána
Skoða betur
14.06.2010

Krosshólaganga 19. júní

Helgiganga í minningu Auðar djúpúðgu verður farin laugardaginn 19. júní í Dölum, þar sem hún nam land fyrir rúmum 1100 árum. Auður djúpúðga Ketilsdóttir var eina konan í hópi landnámsfólks sem fór fyrir eigin leiðangri til Íslands og ein fárra þeirra sem Landnámabók segir að hafi verið kristinnar trúar. Bílastæði eru við Krosshólaborg í Hvammssveit. Göngufólki er ráðlagt að safnast
Skoða betur
12.06.2010

Hestaþingi Glaðs frestað

Hestaþing Glaðs sem vera átti 19.-20. júní hefur verið frestað til 24.-25. júlí vegna kvefpestar í hrossum. Nánari upplýsingar á heimasíðu Glaðs
Skoða betur
Fréttir.