Fréttir.

16.03.2010

Lífræn byggðaþróun , tilraunaverkefni

Fundur um tilraunaverkefni tengt lífrænni byggðarþróun verður í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal kl. 17.00 miðvikudaginn 17. mars. Á fundinn koma Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns og Stefán Gíslason, UMÍS ehf. Environice, Borgarnesi. Erindi Stefáns og Gunnars er að ræða hugsanlega þátttöku Dalabyggðar og bænda í Dölum í tilraunaverkefni um lífræna byggðaþróun sem Vottunarstofan Tún er um þessar mundir að reyna að
Skoða betur
12.03.2010

Íslensku safnverðlaunin 2010

Ábendingum frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum til íslensku safnaverðlaunanna skal skilað til Safnaráðs í pósti eða á netfangið safnarad@safnarad.is fyrir 19. apríl 2010. Félag íslenskra safna og safnmanna og Íslandsdeild ICOM standa saman að íslensku safnaverðlaununum sem veitt eru annað hvert ár safni sem með starfsemi sinni þykir skara fram úr. Óskað er eftir ábendingum frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum.
Skoða betur
12.03.2010

Ungt fólk og lýðræði

UMFÍ heldur ráðstefnu um ungt fólk og lýðræði á Laugum í Sælingsdal 7.-9. apríl 2010. Markmið ráðstefnunnar er að skapa umræðuvettvang fyrir ungmenni sem starfa í ungmennaráðum um land allt. Þema ráðstefnunnar er: Lýðræði og mannréttindi. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Ungmennafélagi Íslands
Skoða betur
04.03.2010

Sveitarstjórn Dalabyggðar

57. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 9. mars 2010 og hefst kl. 16:00 í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Dagskrá: 1. Skýrsla sveitarstjóra.2. Fundargerð sveitarstjórnar frá 09. febrúar 2010.3. Fundargerð sveitarstjórnar frá 25. febrúar 2010.4. Fundargerð sveitarstjórnar ( símafundur ) frá 03. mars 2010.5. Fundargerð Menningarráðs Vesturlands frá 28. janúar 2010.6. Fundargerð Breiðafjarðarnefndar frá 07. janúar 2010.7. Fundargerð ársfundar náttúruverndarnefnda frá
Skoða betur
02.03.2010

Þjóðaratkvæðagreiðsla 6. mars 2010

Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu í Dalabyggð verður haldinn laugardaginn 6. mars 2010. Kosið verður í einni kjördeild í sveitarfélaginu, í Héraðsbókasafni Dalabyggðar, Miðbraut 11, Búðardal. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og honum lýkur kl. 22:00 Sérstök athygli er vakin á því að kjósendum er skylt að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd. Aðsetur yfirkjörstjórnar Dalabyggðar á
Skoða betur
25.02.2010

Bókasafn Dalabyggðar

Bókasafnið verður lokað þriðjudagana 9. mars og 16. mars. Opið þriðjudaginn 2. mars eins og venjulega. Endilega komið og birgið ykkur upp af lesefni. Kveðja, Hugrún bókavörður
Skoða betur
23.02.2010

Aukafundur í sveitarstjórn Dalabyggðar

Aukafundur í sveitarstjórn Dalabyggðar verður haldinn fimmtudaginn 25. febrúar. 2010 og hefst kl. 15:00 í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Dagskrá: 1. Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu. Dalabyggð 23. febrúar 2010. ___________________________Þórður Ingólfsson, oddviti.
Skoða betur
19.02.2010

Heilsuefling starfsmanna MS

Í byrjun febrúar fór á stað heilsuefling starfsmanna Mjólkursamsölunnar samhliða markaðssetningu á nýjum próteindrykk sem hlotið hefur nafnið Hleðsla. Starfsmenn voru hvattir til að taka þátt í heilsuátakinu sem stendur yfir í þrjá mánuði. Undirtektir voru góðar og hátt í fjörutíu átakshópar stunda nú Hleðsluátak á öllum starfsstöðvum MS. Í hverjum hóp eru 5 manns með 1 liðsstjóra sem heldur
Skoða betur
19.02.2010

MS Búðardal fremst fyrirtækja í Dalabyggð til að flokka og endurnýta úrgang.

Hjá MS Búðardal hefur verið flokkun á bylgjupappa og plasti í mörg ár. Með aðstoð aðila frá Gámaþjónustunni ehf. var stigið en lengra skref í flokkun á úrgangi til endurvinnslu 1. október 2009. Allur úrgangur er flokkaður í 7 flokka til endurvinnslu og er skilað inn til Gámaþjónustunnar til endurnýtingar. Flokkar til endurvinnslu: 1. Bylgjupappi og annar pappi 2. Glært/hreint
Skoða betur
11.02.2010

Breyting á snjómokstursdögum

Um áramótin breytti Vegagerðin snjómokstursdögum í Dalabyggð. Íbúum er vinsamlegast bent á að kynna sér nýja áætlun en hana má finna hér. Í næsta Dalapósti verður einnig að finna áætlunina.
Skoða betur
09.02.2010

Breyting á símsvörun heilsugæslulækna

Tilkynning frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands: Frá kl. 8 að morgni 15. febrúar 2010 gildir samræmd símsvörun vakthafandi heilsugæslulækna á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Allir íbúar á Vesturlandi, Ströndum og Húnaþingi vestra nota sama númer 112. Númerið er 112 allan sólarhringinn ef þarf að ná sambandi við heilsugæslulækni á vakt. Almennar tímapantanir og önnur símaþjónusta verður með óbreyttum hætti, vinsamlegast hringið í skipitborð.
Skoða betur
09.02.2010

Eiríksstaðir tilnefndir til Eyrarrósarinnar

Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Eiríksstaðir er eitt þriggja verkefna sem tilnefnd eru í ár. Hin tvö eru: Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra og Skjaldborg – heimildarmyndahátíð á Patreksfirði. Með Eyrarrósinni fylgir fjárstyrkur að upphæð 1,5 milljónum króna
Skoða betur
Fréttir.