Fréttir.

17.04.2009

Dagskrá sveitarstjórnarfundar þann 21. apríl nk.

43. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl. 2009 í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og hefst kl. 16:00Dagskrá: 1. Skýrsla sveitarstjóra. 2. Fundargerð sveitarstjórnar frá 24. mars 2009. 3. Fundargerðir byggðarráðs frá 7. apríl og 16. apríl 2009. 4. Fundargerð fræðslunefndar frá 7. apríl 2009.5. Fundargerð Breiðafjarðarnefndar frá 4. mars 2009. 6. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 26. mars
Skoða betur
15.04.2009

Hundaeigendur athugið!

Hundahreinsun verður 21. apríl n.k. Hin árlega hundahreinsun í Búðardal verður þriðjudaginn 21. apríl, milli kl. 16:00 – 18:00 hjá dýralækninum, Ægisbraut 19. Þeir sem ekki komast á þessum tíma eru beðnir um að hringja í Hjalta dýralækni í síma 434 1122 og panta annan tíma.
Skoða betur
13.04.2009

Markaðsdagur 25.apríl á Jörvagleði

Dalamenn og velunnarar Dalanna nær og fjær: Markaðsdagur verður haldinn á Jörfagleðinni laugardaginn 25. apríl eða á sjálfan kosningadaginn. Markaðurinn verður haldinn í Björgunarsveitarhúsinu milli kl.13 og 18. Þátttakan var frábær á síðustu hátíð og mæltist þessi dagur vel fyrir. Það væri ánægjulegt að sjá alla sem eru að vinna að sölu- og markaðsmálum, smátt sem stórt, kynna og/eða selja
Skoða betur
13.04.2009

Jörvagleði 2009

Dagskrá Jörvagleði 2009 Sjá hér
Skoða betur
31.03.2009

Orðsending frá Héraðsbókasafni Dalasýslu

Það eru vinsamleg tilmæli frá safnverði að þið lítið í hillur ykkar og á náttborðið og ath. hvort einhverjar bækur merktar Héraðsbókasafni Dalasýslu leynist þar. Safnvörður vill einnig minna á að hægt er að skila bókum í bókakassa í anddyri Stjórnsýsluhússins. Bókasafnið er opið á þriðjudögum frá kl. 15:00 – 19:00. Mikið hefur bæst við af nýjum bókum í safnið
Skoða betur
29.03.2009

Atvinna í boði

Um er að ræða félagslega heimaþjónustu í Dalabyggð. Starfshlutfall 60% eða samkvæmt samkomulagi.Vinnutími getur verið sveigjanlegur, laun eru samkvæmt kjarasamningum og viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða og geta hafið störf hið fyrsta.Allar nánari upplýsingar veitir Gróa Dal í síma 892-2332.
Skoða betur
24.03.2009

Sveitarstjórnarfundir hljóðritaðir

Nú er hægt að hlusta á hljóðritun frá fundum sveitarstjórnar á vefnum. 42. fundur sveitarstjórnar – Hljóðritun
Skoða betur
23.03.2009

Hefur þú tíma aflögu ?

Búðardalsdeild Rauða kross Íslands óskar eftir sjálfboðaliðum til að gerast heimsóknavinir. Hlutverk heimsóknavina er að veita félagsskap, rjúfa einsemd og félagslega einangrun fólks með heimsóknum á einkaheimili og stofnanir. Undirbúningsnámskeið verður haldið í húsnæði deildarinnar að Vesturbraut 12 miðvikudaginn 15. apríl kl. 17-19. Námskeiðið er ókeypis og opið öllum áhugasömum. Upplýsingar og skráning er í síma 434-1639 eða 844-5858 eða
Skoða betur
23.03.2009

Laus störf á Fellsenda

Hjúkrunarheimilið Fellsendi óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar. Um er að ræða störf við aðhlynningu, ræstingu og í eldhúsi. Heimilið þjónar geðfötluðum einstaklingum. Fellsendi er góður vinnustaður þar sem ríkir góður starfsandi. Starfshlutfall og vaktafyrirkomulag er eftir samkomulagi. Fellsendi er í 120 km fjarlægð frá Reykjavík og í 20 km fjarlægð frá Búðardal. Upplýsingar veitir Anna Margrét Guðmundsdóttir hjúkrunarforstjóri í síma
Skoða betur
20.03.2009

Sveitarstjórn Dalabyggðar

40. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 24. mars 2009 í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og hefst kl. 16:00 Dagskrá: 1. Skýrsla sveitarstjóra. 2. Fundargerð sveitarstjórnar frá 24. febrúar 2009. 3. Fundargerð byggðarráðs frá 10. mars 2009. 4. Fundargerðir fræðslunefndar frá 10. mars 2009.5. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 23. febrúar 2009. 6. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 5. mars 2009.
Skoða betur
18.03.2009

Skólastjóri nýrrar skólastofnunar í Dalabyggð – Umsóknarfrestur framlengdur

Laust er til umsóknar starf skólastjóra nýrrar skólastofnunar Dalabyggðar. Ráðið verður formlega í starfið frá og með 1. ágúst 2009 en æskilegt er að nýr skólastjóri geti komið til skipulagsvinnu eigi síðar en 1. maí 2009. Starfssvið: · Fagleg forysta skólastofnunarinnar · Skipulag og undirbúningur nýrrar stofnunar · Stuðla að framþróun í skólastarfi · Stjórn og ábyrgð á daglegri starfsemi
Skoða betur
18.03.2009

Áttu gamalt dót úr sveitinni?

Vesturlandsstofa, nýstofnað fyrirtæki, samstarfsverkefni sveitarfélaga og ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi mun á næstu dögum opna skrifstofu og upplýsingamiðstöð í Borgarnesi.Við viljum gera staðinn áhugaverðan og flottan og langar að vita hvort einhver geti gefið/lánað gamla muni úr sveitinni t.d. gamla mjólkurbrúsa, fötur, ker eða annað til skrauts.Ef svo er þá hafið samband við Helgu í síma 430 4706 eða sendið tölvupóst
Skoða betur
Fréttir.