Fréttir.

09.02.2009

Opið hús á Skriðulandi

Konur athugið! Opið hús verður fyrir konur þriðjudaginn 10. febrúar á Skriðulandi. Allar konur hvattar til að mæta og eiga góða stund saman, spjalla og jafnvel taka með sér með handavinnu eða ekki.. Húsið opnar kl. 20:00 Léttar veitingar á vægu verði kr. 500.-
Skoða betur
02.02.2009

Jörvagleði í vor – Fyrsta áminning

Ágætu Dalamenn, nú hefur Jörvagleðinefnd tekið til starfa við undirbúning á Jörvagleði 2009 sem haldin verður dagana 22. – 26. apríl. Ef þú ert með góða hugmynd til að leggja inn í hugmyndabankann okkar fyrir viðburði á Jörvagleði þá sendu hana á ferdamal@dalir.is eða hafðu samband í síma 430 4706. Ákveðið hefur verið að hafa markaðsdag eins og á síðustu
Skoða betur
30.01.2009

Leikskólabörnin flytja í nýja skólann.

Börnin í Leikskólanum Vinabæ, löbbuðu yfir með dótið sitt í nýjan leikskóla sem nú er loksins tilbúinn. Nemendurnir í Grunnskólanum í Búðardal fylgdu þeim yfir á nýja staðinn. sjá fleiri myndir hér.
Skoða betur
23.01.2009

Nýr leiksskóli opnar bráðum

Nú líður að því að nýr leiksskóli verði tekinn í notkun í Búðardal. Hér eru myndir frá því er börnin komu og skoðuðu nýja skólann í fyrsta sinn. Fleiri myndir hér
Skoða betur
23.01.2009

Sveitarstjórn Dalabyggðar

40. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 27. janúar 2009 í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og hefst kl. 16:00 Dagskrá: 1. Fundargerð sveitarstjórnar frá 30. desember 2008. 2. Fundargerð byggðarráðs frá 12. janúar 2009. 3. Fundargerðir Breiðafjarðarnefndarinnar frá 13. nóvember og 5. desember 2008. 4. Fundargerð fjallskilanefndar Saurbæjar frá 1. september 2008. 5. Fundargerð Heilbrigðiseftirlits Vesturlands frá 10. desember 2008 auk
Skoða betur
21.01.2009

Þorrablót

...
Skoða betur
20.01.2009

Handverksfólk athugið

Prjónakvöld Eigum við að hittast, spjalla saman og miðla hugmyndum okkar? Stefnan er að koma saman þrisvar sinnum í vetur, byrjum þriðjudaginn 27. janúar á prjónakvöldi. Opið hús verður í handavinnustofunni í Grunnskólanum í Búðardal frá klukkan 20:00- 22:00. Gríptu með þér prjónana, allar hugmyndir og góða skapið og kíktu á okkur. Eins ef þú átt góða sögu eða bók
Skoða betur
14.01.2009

Skýrsla um framtíðarsýn í skólamálum

Þriðjudaginn 12. janúar sl. var haldinn fjölmennur fundur í Tjarnarlundi þar sem skýrsla um framtíðarsýn í skólamálum í Dalabyggð var kynnt fyrir íbúum og starfsmönnum Dalabyggðar. Skýrslan var fyrr um daginn kynnt fyrir sveitarstjórn og fræðslunefnd. Umræður á fundinum voru frjóar og skemmtilegar og þátttaka í þeim var almenn og uppbyggjandi. Skýrslan hefur nú verið send fræðslunefnd til umsagnar og
Skoða betur
14.01.2009

SÖGUSLÓÐIR Í HÉRAÐI – Opið málþing SSF

Samtök um sögutengda ferðaþjónustu verða með málþing á Hótel Hamri föstudaginn 16. janúar og hefst það kl. 16:00. Yfirskrift málþingsins er „Söguslóðir í héraði„ Dagskrá: 16.00Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi Uppsveita Árnessýslu. „Menningarferðaþjónusta á Mön. Reynslan af heimsókn félaga í SSF í október 2008.“ 16.20Eggert Þór Bernharðsson, sagnfræðingur og dósent í hagnýtri menningarmiðlun. „ Á söguslóðum í Reykjavík.“ 16.40Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbersseturs,
Skoða betur
13.01.2009

Stafræn ljósmyndun

Laugardaginn 17. janúar 2009 verður haldið námskeið í stafrænni ljósmyndun og meðhöndlun ljósmynda í ljósmyndaforritinu Picasa. Námskeiðið fer fram í Búðardal Allar nánari upplýsingar veitir Björn Anton Einarsson í síma 892-6704 og 434-1332
Skoða betur
08.01.2009

Framtíðarstefna Dalabyggðar í skólamálum fundur í Tjarnarlundi

Opinn kynningarfundur um framtíðarstefnu Dalabyggðar í skólamálum verður haldinn í félagsheimilinu Tjarnarlundi, þriðjudaginn 13. janúar nk. kl. 20:30. Sigurður Tómas Björgvinsson mun þar kynna niðurstöður skýrslu um skólamál í Dalabyggð. Sveitarstjóri og sveitarstjórnarmenn munu taka þátt í umræðum á eftir. Skorað er á sem flesta, foreldra, starfsfólk og aðra, sem láta sig skólamál í sveitarfélaginu varða, að mæta og taka
Skoða betur
07.01.2009

Starfsmenn óskast í hlutastörf

Dalabyggð auglýsir eftir starfsmönnum í hlutastörf.Leiðbeinandi á leikskólann Vinabæ í 67.5% hlutastarf.Tveir starfsmenn í nýjan heilsdagsskóla í Dalabúð 40% stöður og er vinnutími eftir hádegi. Til greina kemur að sameina starf á leikskóla og annað starfið í heildagsskólanum í 100% stöðu. Störfin eru laus nú þegar. Áhugasamir hafi samband við sveitarstjóra í síma 430-4700 eða leikskólastjóra í síma: 434-1311 Grímur
Skoða betur
Fréttir.