Fréttir.

06.01.2009

Upprifjunar og endurlífgunarnámskeið í skyndihjálp

Upprifjunar og endurlífgunarnámskeið í skyndihjálp verður haldið á Laugum í Sælingsdal fimmtudaginn 8. janúar kl. 9-13 Verð 5000.- innifalið kennslugögn og hádegismatur. Allir velkomnir. Leiðbeinandi er Oddur Eiríksson sjúkrafluttningamaður. Skráning í ungmennabúðunum í síma 861-2660 eða á netfangið laugar@umfi.is
Skoða betur
05.01.2009

Tilkynning frá Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi.

Námsvísir vorannar hefur komið inn um lúguna um þetta leyti, en brugðið verður út af vananum í þetta sinn. Ástæðan er sú að Símenntunarmiðstöðin á 10 ára afmæli á þessu ári eða 19. febrúar nk.Af því tilefni hefur stjórn stofnunarinnar skipað afmælisnefnd sem mun vinna að veglegu afmælisblaði sem verður gefið út á vormánuðum. Einnig er fyrirhugað að halda upp
Skoða betur
05.01.2009

Bókasafnið lokað

Þriðjudaginn 06.01.2009 verður Héraðsbókasafn Dalasýslu lokað vegna jarðarfarar. Bókasafnið verður opið þess í stað á miðvikudaginn 07.01. og fimmtudaginn 08.01. frá kl. 15:00 – 19:00
Skoða betur
02.01.2009

Gleðilegt nýtt ár

Vel viðraði fyrir brennur á áramótum. Þessi mynd var tekin við Árblik í Miðdölum þar sem bændur komu saman og fögunuðu nýju ári.
Skoða betur
30.12.2008

Jólaball í Dalabúð

Fleiri myndir hér
Skoða betur
29.12.2008

Jólaball í Dalabúð

Jólaball verður haldið mánudaginn 29. desember og hefst kl. 17:00 Í boði verður kakó, kaffi og safi. Sami háttur er á og í fyrra að fólk leggi til smákökur eða annað sem tiltækt er á sameiginlegt veisluborð. Frítt inn. Hittumst í jólaskapi Lionsklúbbur Búðardals
Skoða betur
23.12.2008

39. fundur sveitarstjórnar

Sveitarstjórn Dalabyggðar 39. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 30. desember nk. í Stjórnsýsluhúsinu Búðardal og hefst kl. 16:00 Dagskrá: 1. Ráðning ritara sveitarstjórnar. 2.Fundargerð sveitarstjórnar Dalabyggðar frá 9. desember 2008. 3.Fundargerð byggðarráðs frá 25. nóvember 2008. 4.Fundargerð byggðarráðs Dalabyggðar frá 15. desember 2008. 5. Fundargerð stjórnar SSV frá 8. desember 2008. 6.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 12. desember
Skoða betur
23.12.2008

Losun á rúlluplasti

Losun á rúlluplasti! 05.01. – 07. 01. 2009. Vinsamlega pantið losun á skrifstofu Dalabyggðar í síma 4304700 fyrir 02. 01.2008. Viðar Þór Ólafsson, bæjarverkstjóri Dalabyggðar.
Skoða betur
23.12.2008

Jólaljósasamkeppnin í fullum gangi

Nú sem síðastliðin ár verður samkeppni um flottustu jólaskreytinguna í Dalabyggð. Dómnefnd fer um Dalina milli jóla og nýárs og velur einn sveitabæ og eitt hús í Búðardal úr fjöldanum og verður ekkí auðvelt valið þetta árið þar sem menn hafa verið duglegir að skreyta. Nefndin
Skoða betur
16.12.2008

Nýtt jólalag á Dalavefnum

Nú er ekki lengur bara „Heim í Búðardal“ heldur „Jól í Búðardal“ Það geta allir hlustað á jólalag þeirra systkina Írisar og Þorgríms hér á vefnum. Um undirleik og söng sér Íris Guðbjartsdóttir.
Skoða betur
15.12.2008

Jólatrésala í Daníelslundi

Slysavarnadeild Þverárþings og Björgunarsveitin Heiðar í samvinnu við Skógræktarfélag Borgarfjarðar verða með jólatrésölu í Daníelslundi laugardaginn 20.des og sunnudaginn 21.des kl 12-16. Björgunarsveitarmenn verða á staðnum til aðstoðar fólki við að velja sitt eigið jólatré í skóginum og fella það. Björgunarsveitin sér um að pakka trjánum í net. Allir velkomnir
Skoða betur
15.12.2008

Sögufélagið með upplestur í Leifsbúð

Upplestur á aðventu Sögufélag Dalamanna stendur fyrir upplestrarkvöldi í Leifsbúð næstkomandi miðvikudag 17. desember kl. 20:00. Félagar úr sögufélaginu munu lesa sögur og ljóð úr ýmsum áttum. Boðið verður uppá léttar veitingar gegn vægu verði. Nú er tilvalið að taka örstutt hlé frá jólaundirbúningi, drífa sig í Leifsbúð og hitta mann og annan. Stjórnin
Skoða betur
Fréttir.